Viltu alltaf ,,bestu niðurstöðuna” eða nógu góða niðurstöðu? Ertu ,,maximizer” eða ,,satisfier”
,,Satisfier” eru bara sáttari, sætta sig fljótt við fínan kost, ekki endilega þann besta en bara gerir ekki rellu yfir því. Niðurstaðan þarf ekki að vera alltaf sú besta í alla staði, bara fín niðurstaða. Sá sem er ,,Maximizer” vill bara alltaf bestu niðurstöðuna, fær ráðgjöf héðan og þaðan til að enda örugglega með bestu hugsanlegu stöðuna frá öllum hliðum.
Sá sem er ,,sáttari” í sér, er síður með eftirsjá.
Sá sem er ,,hámarkari” er líklegri að upplifa minni hamingju, meiri eftirsjá og minna sjálfsálit. Þeir eru líklegri að vera haldnir fullkomnunaráráttu og fá meiri streitu.
Hvernig á að velja sér menntaskóla eða háskóla? ætlar þú að lesa allar kannanir og rannsóknir, reiða sig á utanaðkomandi heimildir og ,,félagslegar stöður”, í stað þess að velja skóla sem þú veist að þú munt njóta þín í og uppfyllir þarfir þínar?
Eða ef þú ert að gera breytingar t.d. á heimili, þarftu að velta við hverjum steini og ekki vera ánægð nema vera með það allra besta?

Á heildina litið ná hámarkarar betri árangri en þeir sem eru ánægðir. En því getur alveg fylgt streita og örvænting, er orkufrekt og tímafrekt.
