Að auka seiglu, snýst um valdeflingu, vöxt og möguleika.
Seigla snýst um að breyta erfiðleikum í öryggi. Breyta kvíða og stressi og ótta, í öryggi.
Að aðlagast er seigla, að ná sér hratt og vel er seigla.
Hreyfing, núvitund, félagsleg tengsl, efla von, fá upplýsingar, að efla bjartsýni, að leita ráða, að læra af öðrum, allt góðar leiðir til að efla seiglu.
Hvað hefur þú sem þú getur notað?
Þinn sálfræðilegi auður – hver ertu, hverjar eru vonir þínar, virkni, seiglan þín og bjartsýni?(Yfirgripsmikið hugtak sem nær yfir jákvæða eiginleika sem eru einstök, mælanleg, hægt að þróa og hafa áhrif á frammistöðu)
Fjárhagsleg staða – hver er staðan?
Félagsauður – hverja þekkir þú?
Þekkingarleit – hvað veistu og hvað viltu vita meira?

Hvernig getur þú eflt eigin seiglu með eigin sögum?
- skoðaðu þína eign sögu, hvenær þú hefur lent í honum kröppum og hvaða verkfæri þú notaðir sem virkuðu best
- Skoðaðu lífssögu þína og ramnmaðu hana inn með 2 mannkostum og styrkleikum sem eru lýsandi fyrir þig – hvaða mannkostir hafa komið þér lengst hingað til?
- Finndu þína innri hetju,
Hvernig getur þú lært seiglu af öðrum?
- skoða þeirra ákvarðanir
- hvaða verkfæri þau notuðu
- hvaða styrk þau fengu við reynsluna
- fá innsýn í þeirra þankagang
Hvort lítur þú á vandamál þín sem viðvarandi, eða tímabundin? Þótt það sé eitthvað eitt sem er ómögulegt, er ekki allt ómögulegt, heldur bara það eitt. Taktu hlutunum ekki persónulega, orsökin eru oftar vegna ytri þátta, aðstæðna eða óheppni (skýringarstíll).
Bjartsýni er val, og ákvörðun. Þú skalt vona það besta en búa þig undir það versta. Sjáðu fyrir þér hvað væri það besta sem má gerast.
(ABCDE model, Seligman and Albert Ellis) og matsblað: Psychological Capital Questionnaire (PCQ-5). •Psychological Capital. Group & Organization Management. https://doi.org/10.1177/10596011221127383
Punktar til ráðgjafa sem eru að vinna með seiglu
- Seigla er að ná sér sem fyrst aftur á strik!
- Að halda einkennum niðri
- Að aðlagast
- Að brosa! ekki gleyma að brosa og hlægja inn á milli, láta ráðþega brosa!
- Hvernig og hvenær veistu, að viðkomandi líður betur? – ná mynd af því með skjólstæðingi
- Dveldu við góðar sögur – skildu eftir sögu
- Eru fleiri leiðir?
- Hvernig ,,planta” ert þú? hvað þarftu? ertu í réttu umhverfi? ertu að fá rétta næringu? hversu vel þekkir þú sjálfa þig?
- Ertu búin að prófa ,,vaxandi viðhorf” til verkefnisins frekar en ,,staðnað”?
- Hugsa ,,með” viðkomandi
- Hvað notarðu samfélagsmiðla mikið? ertu eitthvað utandyra? Farðu út í birtuna korter á dag
- Láta horfa á eitthvað – svo taka umræðuna
- Skapa í sandinn … túlka og ræða
- Líkamshreyfingar, vinna með þetta þaðan
- Veldu þér ,,þema” þar til við hittumst næst
- Hvað kom þér síðast í gegnum erfiða tíma? getur þú notað aftur þá aðferð?
- Ef alveg týnd og döpur – er hægt að endurhanna söguna með birtu í huga! Sjáðu hetjuna í sjálfri þér, leitaðu að hetjunni!!
