Hvað lærði ég á fræðslufundi hjá Dale Carnegie?

Það er breytingarþreyta um 73% millistjórenda í dag, svo miklar breytingar og hraði í atvinnulífinu. Þetta lærði ég á áhugaverðum fyrirlestri á vegum Dale Carnegi í vikunni. Fyrirlesturinn var um gerfigreind, breytingarstjórnun og mismunandi virkni í vinnunni, þ.e. hversu mikla helgun fólk hefur í starfi og það virðist vera dvínandi, auk þess áhrif aldurs í því samhengi, að atvinnulífið sé full miðað fyrir miðaldra starfsmenn og taka þurfi betur utan um z kynslóðina á vinnumarkaðnum.

Þau bentu okkur á þessa grein á Forbes, sem segir að á sumum vinnustöðum í dag séu yfirmenn sem eru kallaðir ,,hávaðasamir stjórnendur” og svo hins vegar óvirkir starfsmenn, sem gera bara lágmarks, eru ekki með köllun eða ástríðu að vopni. Háværu stjórnendurnir reyna þá að búa til fleirri fundi, senda fleiri netbréf og reyna þannig að viðhalda virkni, sem virðist gera óvirka enn óvirkari og pirraðri, svo það er alltaf spenna á vinnustaðnum.

Hvað er til ráða? Að stjórnendur séu forvitnir, spyrji opinna spurninga, sýni starfsmanninum áhuga og starfi hans og skapi þannig meiri virkni, ábyrgð og áhuga – og þá bara jafnvel á stuttunum 2ja manna spjalli með reglulegum hætti. Það sé leiðin. Setið inn símenntun varðandi samskipti, tilfinningagreind og gæta að sálrænu öryggi þannig að starfsmenn þori að tjá sig, hvað þeir séu raunverulega að hugsa.

Svo má ekki gleyma því að fólk skiptir gjarnan um starf helst vegna:, næsta yfirmanns, af því þeir hafa misst traust eða trú á framtíðrasýn og stefnu atvinnurekendans eða vegna stjórnendahátta.

https://www.forbes.com/sites/dianehamilton/2025/01/04/quiet-quitters-vs-loud-leaders-the-new-battle-for-workplace-culture/

Leave a comment