Að eiga vin í núvitund

Það sem núvitund hjálpar okkur að vinna með skv. John Kabat-Zinn er;

  1. Mildi og minni dómharka. Við erum að þjálfa okkur í að sleppa takinu, þjálfa þolinmæði og draga úr keppnis. Af því að í núvitund ertu að þjálfa þig í að vera áhorfandi, bara vera – vera í stöðu hlutleysis og finna samhyggð gagnvart sjálfum þér og umhverfinu, róa hugann, hleypa inn mildi og mýkt og sátt.
  2. Þolinmæði. Þú þjálfar upp þol gegn erfiðleikum með núvitund og agar þig segir Jon Kabat Zinn. Þú skapar meiri þolinmæði gagnvart því að það er ekki allt eftir þínu höfði. Hlutirnir og lífið er ekki eins og þú hefðir viljað, kosið. Enn núvitundaræfingar gefa þér tilfinningu fyrir því hvernig hlutirnir eru, hverju þú hefur stjórn á og hverju þú hefur ekki stjórn á. Jafnvel færðu ró á þá tilfinningu að vera að flýta þér frá einu augnabliki til annars, því það er ekki allt undir þér komið hvort sem er þótt þú hafir haldið það eða vonað. Þú ert í rauninni að æfa þig að vera eins og ,,byrjandi” í þessu augnabliki. Finna, upplifa, finnurðu lykt? bragð? hljóð? líðan? Bara rétt eins og þótt þetta augnablik sé eins og öll önnur augnablik, þá er þetta samt augnablikið sem er núna og það er aldrei eins og önnur augnablik. Gjöfin er hér og nú. Þú ert ekki að reyna að drottna, stjórna, ýta á eftir, dæma. Nei þú ert að upplifa eins og barn – þetta einstaka augnablik, rétt eins og þetta væri fyrsta vindkviðan, fyrsti vatnsdropinn, fyrsta appelsínubragðið. Þetta augnablik er ekki eins og þér finnst það eiga að vera, nei það bara er og opna á upplifun hverrar stundar. heldur bara er eins og það er. Núið, lyktin, tilfinningin, snerting, bragð, hljóð… hvert andartak er einstakt. Þótt þú hafir upplifað sólsetur, hefur þú ekki upplifað akkurat þetta sólsetur.
  3. Traust. Þú lærir að treysta sjálfum þér og tilfinningum þínum betur. Þú öðlast meiri meðvitund og samkennd um lífið, þetta er þín stund, þínar upplifanir, þín augnabliki. Þetta skapar samkennd með þér, meiri næmni og vitund um hvað er að gerast. Innra með þér. Í líkamanum. Í umhverfinu. Bara anda, skoða, virða fyrir sig. Þú gætir náð að tengjast þér betur og lifa í meiri sátt við þig sjálfa og aðra, lifa í meiri einlægni og ró.
  4. Slaka á og bara vera til. Okkur gæti nefnilega hætt til að eyða of mikillri orku í að reyna að breyta, ýta á eftir, pressa. Sem getur beinlínis skapað allskonar óreiðu og vandræði t.d. í samskiptum. Egóið okkar vill meira af þessu og hinu – og losna sem fyrst við það sem egóið vill ekki, enn það er svo margt sem einfaldlega er ekki á okkar valdi, né á að vera það. Núvitund er að hjálpa þér að veita athygli, ekkert annað, án þess að dæma það sem er að gerast, án þess að hafa áhrif, bara vera. Þjálfun í að vera frekar enn að gera. Þjálfun í að ná markmiðum þínum, án streitu, án kvíða, án ótta, án reiði, án sorgar, án án þess að hugsa um árangur. Ert að mýkja, opna, leitast við að finna sátt, vingast við. Samþykkja það sem er, með þeim sársauka, sorg og þjáningu sem því fylgir. Tilfinningin um baráttu gæti smá losnað. Þú hættir að afneita. Hættu að berjast. Færð meiri frið og sátt. Nei þetta þýðir ekki að þú eigir að vera aðgerðarlaus eða ekki taka afstöðu. Þýðir bara að viðurkenna og sjá hlutina eins og þeir eru. Þetta getur hjálpað þér að bregðast betur við, með heilbrigðari hætti og jafnvel þar með öflugri hætti. Því núvitund skapar vellíðan sem getur aukið farsæld.
  5. Sleppa takinu. Láttu bara upplifun þína vera það sem hún er, augnablik fyrir augnablik. Jafnvel getur þú fundið að það sem truflar, einfaldlega fer. Losar um einhvern veginn.

Leave a comment