Ég færi ykkur mikinn boðskap:

Samkvæmt uppfærðri skilgreiningu stofnunarinnar er manneskjan ung til 65 ára aldurs og miðaldra til 79 ára. Segir á síðunni Lifðu núna! 🙂
Ertu orðin miðaldra kona?

Svo get ég ekki stillt mig um að setja hér inn ræðu skólameistara 1951 til útskriftarnema og með þessu ljóði þar að auki eftir Freystein Gunnarsson:
„Ég fann það um síðir, að gæfan er gler,
svo grátlega brothætt reyndist hún mér,
en æskan er léttstíg og leikur sér
að ljómandi gullinu fríða,
en glerið er brothætt og grjótið er víða.Mér gersemin dýra var gefin í hönd;
í gáskanum héldu mér engin bönd.
Ég lék mér á æskunnar ljómandi strönd,
sá leikur varð gullinu að meini;
ég braut það í ógáti á örlagasteini.“
Sjá: https://heimaslod.is/index.php/Blik_1951/Vi%C3%B0_leitum_%C3%B6ll_hamingjunnar
Þýðing – Gyrðir Elíasson:

Ljóð eftir afa:
Hvað er betra enn að eiga,
innri gleði, innri frið.
Guð minn þá er gott að meiga,
ganga út í sólskinið.
Eftir Pálma Eyjólfsson, sýslufulltrúa. Hvolsvelli
Leitin að gullinu eftir Steinunni Finnbogadóttur, ljósmóður.


Eftir Sigurð Einarsson frá Holti

