Á námskeiðum mínum Jákvæð sálfræði og markþjálfun, seigla og styrkleikar í atvinnulífinu þá er ég að nota inngrip úr jákvæðri sálfræði sem hjálpa okkur að staldra við. Hluti af því er að skoða góðverk og gera góðverk, efla tengsl með því að deila með hinum þátttakendum reynslunni af inngripunum, taka eftir því sem er í lífi okkar sem er í lagi og veitir okkur gleði, lærum nýtt t.d. vel þekktar kenningar og rannsóknir úr sálfræðinni og við dveljum við þakklæti og jafnvel náum að efla hreyfingu og núvitund.
Námskeiðin mín eru á netinu, t.d. reglulega hjá Endurmenntun Háskólans á Akureyri, hér í Reykjavík – staðnám og svo er ég einnig með netnámskeið sem taka yfir 2 mánuði. Nánar um það þegar líður að haustinu, getur líka sent mér fyrirspurn á hrefnagudmunds@simnet.is og hamingjuvisir@gmail.com.


Allir vilja upplifa vellíðan í eigin lífi. Hér fyrir neðan má finna fimm einföld ráð til þess, sem byggja á rannsóknum um þá þætti sem skipta mestu máli fyrir hamingju og lífsánægju – fengið af heimasiðu Áfalla- og sálfræðimiðstöðin:
1. Myndaðu tengsl
Myndaðu tengsl við fólkið í kringum þig, fjölskyldu þína, vini, samstarfsfólk og nágranna. Ræktaðu tengslin heima hjá þér, í vinnunni, í skólanum og í nánasta umhverfi þínu. Líttu á þessi tengsl sem hornsteina lífs þíns og gefðu þér tíma til að hlúa að þeim. Að byggja upp þessi tengsl styrkir þig og auðgar líf þitt á hverjum degi.
Leiðir til að efla tengslin eru fjölmargar og í raun bara hugmyndaflugið sem heftir fólk í því. Tilvalið er að gera eitthvað saman og skapa með því góðar minningar. Það eflir líka tengslin að hjálpast að við þau verkefni sem fyrir liggja.
2. Hreyfðu þig
Farðu út að ganga eða í sund. Njóttu útivistar. Hjólaðu. Farðu í leiki. Ræktaðu garðinn. Dansaðu. Hreyfing færir þér vellíðan. Það er mikilvægasta er að finna hreyfinu sem þú hefur gaman af og hentar líkamlegu ástandi þínu og getu.
Það eykur líkurnar á að það takist ef þú færð vin eða fjölskyldumeðlim til að vera með þér í hreyfingunni. Flestum finnst bæði skemmtilegra og auðveldara að hreyfa sig með öðrum. Það eflir líka tengslin og þannig má segja að tvær flugur séu slegnar í sama högginu.
- Taktu eftir
Haltu í forvitnina. Taktu eftir hinu óvenjulega. Veittu árstíðabreytingum athygli. Njóttu augnabliksins, hvort sem þú ert úti að ganga, að borða hádegismat eða tala við vini þína.
Vertu vakandi fyrir veröldinni í kringum þig og hvernig þér líður. Að leiða hugann að því sem þú upplifir hjálpar þér að meta það sem skiptir þig máli.
- Haltu áfram að læra
Prófaðu eitthvað nýtt. Rifjaðu upp gamalt áhugamál. Skráðu þig á námskeið. Taktu að þér ný verkefni. Lærðu að spila á hljóðfæri eða elda uppáhaldsmatinn þinn.
Settu þér markmið sem þú munt hafa gaman af að ná. Það er skemmtilegt að læra nýja hluti og eykur sjálfstraustið.
- Gefðu af þér
Gerðu eitthvað fallegt fyrir vil þinn eða ókunnuga manneskju. Sýndu þakklæti. Brostu. Gefðu af tíma þínum. Taktu þátt í félags- eða sjálfboðastarfi.
Fjölmörg góðgerðafélög eru rekin af sjálfboðaliðum og innan íþróttafélaganna er alltaf þörf fyrir vel meinandi sjálfboðaliða. Hikaðu ekki við að taka að þér verkefni fyrir félagsskap sem þú tengist eða hefur áhuga á.
Horfðu út á við og líka inn á við. Að líta á sig og hamingju sína sem hluta af stærra samhengi getur verið einstaklega gefandi og eflir tengslin við fólkið í kringum þig.
Hvernig urðu leiðirnar fimm til?
Árið 2008 fól vinnuhópur á vegum bresku ríkisstjórnarinnar, Foresight‘s Mental Capital and Wellbeing Project, samtökunum New Economic Foundation að fara yfir rannsóknir á áhrifaþáttum vellíðanar og finna gagnreyndar aðferðir til að auka vellíðan og lífshamingju.
Samtökin fóru yfir rannsóknir ríflega 400 rannsakenda víða um heim og tóku saman þær aðferðir sem höfðu sterkastan rannsóknargrunn að baki. Fimm leiðir að vellíðan, eða „Five Ways to Wellbeing“, eru afrakstur þeirrar vinnu. Rannsóknir sýna að jafnvel lítilsháttar aukning á vellíðan getur átt þátt í að draga úr sumum geðrænum vandamálum og hjálpað fólki að blómstra í lífinu.
