Hvernig maki passar einstaklingi með ADHD?

Maka sem er sveigjanlegur og samúðarfullur, sem sér kosti þess sem er með ADHD, sem jafnvel er hvetjandi og styðjandi við tímastjórnun, eftirfylgni og skipulagningu. Enn fyrst og fremst skaltu leita að einhverjum sem verður ekki auðveldlega stressaður þegar hlutirnir gerast ekki eins og búist var við. Enn auðvitað mikilvægast að deili svipuðum gildum og hafa gaman saman og standa saman á erfiðustu stundunum og þeim gleðilegustu. Geta hlegið með og geta fundið stundum húmorinn í fáránlegum aðstæðum, sem adhd einstaklingur lendir gjarnan í. Þeir sem eru með ADHD eru líklegri að lenda í vinnuvandamálum og makar verða að geta talað um tilfinningar, ekki byrgja inn í sér og safna upp slæmum tilfinningum.

Enn sá sem er með ADHD þarf auðvitað að bera ábyrgð á sér og læra á sitt ADHD, því þekking flytur fjöll, enn það að vera mað ADHD þýðir oft dálítið flóknara líf, smá meiri árekstrar og vesen enn oft líka meira gaman. Því fylgir oft ofurfókus, að vera fljótur að missa áhuga, að eiga erfitt með að gera það sem er leiðinlegt, oft fylgir óöryggi og brotthættara sjálfsöryggi, svo þú vilt finna þér maka sem sér kosti þína, getur hrósað og hvatt þig og getur haft gaman með.

Smá meira áhugavert á: https://www.adhdmarriage.com/

Leave a comment