Af því ég hef lært hláturyoga, finnst mér áhugavert að staldra við þessa mynd. Nú í fyrsta lagi kenndi Ilmur Kristjánsdóttir leikkona okkur að búa til hlátur, í þætti Gísla Marteins (Vikan) fyrir einhverjum misserum síðan. Byrja á því að tæma öndun sína og byrja svo að hrista magann!
Tegundir hláturs? hlægja niðurí maga, hlægja inn í sér, hlægja lágt, kíma. Hláturkast er ein tegundinn, að hlægja af því maður er kitlaður eða eiginlega pýndur til að hlægja. Mjög óvæntur hlátur þar sem maður óvart skellir mjög uppúr átt og snjallt er ein týpan, að hlægja af því manni líður vel – t.d. af því maður er að sjá einhvern sem maður elskar og hefur ekki séð lengi – bara innilegur ánægjuhlátur. Og að síðustu er það einhvers konar taugaveiklunarhlátur, í vandræðaskap, af því maður er feiminn eða eitthvað líkt. Áhugavert ekki satt!

