Rannsóknir í félagssálfræði styðja að það gerir daginn betri, að bjóða góðan daginn, brosa að fólki sem við mætum á förnum vegi. Það virðist einnig gera daginn skárri hjá þeim sem við köstum kveðjur á. 9 af 10 manns kunna að meta þetta.
Ef þú opnar á samtal við ókunnuga, á biðstofu, í strætóskýli, í biðröð, á fundum, í almenningsgarði, á kaffihúsi, á bókasafni, í bókabúð, við afgreiðslufólk, starfsfólkið í Bónus – þá skapar það tilfinningu um að við tilheyrum, að við séum í samfélagi, ekki bara samansafn einstaklinga.
•Allt í kringum okkur er fólk að lifa lífinu sínu. Við virðumst hvergi geta farið án þess að rekast á annað fólk. Gætum við gert líf okkar skemmtilegra með því að eiga í samskiptum við eitthvað af þessu fólki?
•Gætum við litið á allt þetta fólk sem tækifæri til þess að gera daginn betri, fyrir okkur sjálf og aðra?
Afsökunarspólurnar segja:
•Þessi manneskja vill pottþétt ekki vera trufluð
•Henni/honum finnst örugglega skrítið ef ég heilsa
•Ég vil ekki líta út fyrir að vera asnaleg/ur
•Hvað ef þetta verður vandræðalegt?
Enn ef þú hlustar á hina spóluna – þá segir hún:
•Þetta er góð áskorun fyrir okkur
•Við höfum engu að tapa
•Það gerist ekkert hræðilegt
•Það er gott að stíga út fyrir þægindarammann
•Við gætum eignast nýjan vin/kunningja
•Þetta mun jafnvel gera okkar dag skemmtilegri!
•91% fólks finnst skemmtilegt þegar ókunnugir bjóða góðan daginn og nær engum finnst það leiðinlegt
•75% okkar þykir skemmtilegt þegar ókunnugt fólk byrjar stutt samtal við okkur og aðeins 7,5% þykir það leiðinlegt

•Æfum okkur í því að hefja stutt samtöl við fólkið í kringum okkur
•Setjum okkur markmið um að ræða við að minnsta koti eina ókunnuga manneskju á dag í heila viku
•Samtölin þurfa ekki að vera löng
•Bara nokkrar setningar fram og til baka nægja
•Ef samtölin eru við afgreiðslufólk gildir ekki að tala eingöng um vöruna eða viðskiptin. Það telur aðeins ef við færum umræðuefnið út fyrir viðskiptin
•Reynum að taka eftir því að æfingin verður auðveldari því oftar sem við gerum hana
Samskipti – bók eftir Pálmar Ragnarsson er góð bók um samskipti – sjá: https://www.forlagid.is/vara/samskipti/

Hér er líka frábær grein eftir Ingrid Kuhlman síðan 2025, af hverju við ættum að hefja samtal við ókunnuga:
https://www.visir.is/g/20262837587d/sam-tal-vid-o-kunnugan-getur-aukid-hamingju-orku-og-tengsl


Við lifum í menningu sem kennir okkur að varast.
En sögulega hefur samfélag byggst á trausti milli ókunnugra.
Að tala við ókunnuga er ekki bara félagsleg hegðun — það er siðferðileg afstaða: að viðurkenna mannlega samveru.
ókunnugir – ekki hætta – heldur möguleiki
- Við ofmetum óþægindi.
- Við vanmetum ánægjuna.
- Smá samtal við ókunnugan eykur vellíðan meira en við höldum.
Rannsóknir sýna:
- Fólk sem talar við ókunnuga í lest upplifir meiri ánægju.
- Djúp samtöl við ókunnuga (um gildi, drauma, ótta) auka tengsl og merkingu.
Samfélög sundrast þegar við hættum að tala saman segir einn fræðimaðurinn.
Lausnin er skipulögð samtöl milli ólíkra hópa.
Þegar fólk hittist augliti til auglitis minnkar fjandskapur.
https://www.economist.com/books-and-arts/2021/07/10/the-vital-art-of-talking-to-strangers

