Að ferðast, án þess að fara úr stað

Það er ekki nóg að ferðast, enn að ferðast hjálpar okkur oft að sjá hlutina með nýjum augum og kynnast sjálfum sér með nýjum hætti og vitundinn víkkar. Ó það er svo gaman!! og þá finnur maður hvað maður er þakklátur fyrir og hvað skiptir mann máli.

Þegar maður sér heiminn með nýjum hætti – þá er allt breytt!

  • Áfangastaðurinn er aldrei staður – heldur ný sýn – Henry Miller

Nýtt sjónarhorn. Nýr skilningur. Nýtt innra landslag.

Ferðalag þarf sem sagt ekki að vera landlægt, heldur getur líka verið sálrænt, vitrænt og tilvistarlegt!

Breytir því hver maður er og hvar maður vill vera í stóru myndinni.

Þetta getur gerst á námskeiðum, að hlusta á erindi – og þegar maður situr námskeið í jákvæðri sálfræði 🙂 já jújú 🙂 t.d. þegar maður sér sjálfan sig og aðra í augum styrkleikanna, þegar maður skoðar vaxandi hugarfar í erfiðar aðstæður hjá sér, þegar maður rýnir í eigin merkingu í lífinu og sér skýrar. Oft hjálpar að nota skapandi aðferðir til að laða fram þetta innra ferðalag, skapandi aðferðir eins og nota liti, tákn, krot, – já og bara list til að sjá hlutina öðruvísi!

Þetta er ég að vinna með t.d. hjá Framvegis, hjá Hringsjá, hjá fólki hjá Vinnumálastofnun og hjá Virk.

Enn það er samt þannig að ég læri og ferðast líka með þeim sem ég hitti, ég sé veröldina oft með nýju ljósi af því að einhver segir mér frá sinni lífsreynslu, sinni vitrun, sínum innblæstri, sinni líðan.

Leave a comment