Það er mjög heilandi að skrifa sig frá erfiðri reynslu, erfiðum einstaklingum, til að hjálpa sjálfum sér andlega, skrifa niður hvað maður er að upplifa, vera mjög nákvæmur og jafnvel endurskrifa síðan tvisvar, þrisvar. Geyma, opna daginn eftir, skoða, hugsa, og skrifa aftur.
Þetta virkaði t.d. hjá ekki ómerkari manni en Agli Skallagrímssyni sem orti 25 erindi um sonarmissi. ljóð/dróttur um sonarmissir. Í ljóðinu lýsir Egill mikilli sorg sinni og reiði í garð Óðins fyrir að hafa tekið tvo syni sína. Er líður á ljóðið dregur Egill smámsaman úr ásökunum sínum og að lokum þakkar hann Óðni fyrir skáldskaparhæfileikana sem honum höfðu hlotnast.
Æfing:
Hugsaðu til baka, um erfiða reynslu. Sem tengist viðburði eða einstaklingi. Hugsaðu nú um atburðinn, eins og þú sért að horfa á sjónvarp. Sjáðu söguna út frá sjónarhorni þínu, úr fjarlægð. Sjáðu nú söguna líka út frá öðrum. Skrifaðu nú nýja útgáfu. Sami viðburður, eða samskipti, eða sami einstaklingur/sömu einstaklingar.
hér er boðið upp á skriftarverkefni í 8 vikur – sjá: http://www.dailyom.com/cgi-bin/courses/courseoverview.cgi?cid=83&aff=92&cur=eur&ad=2018012302&img=66
