Skapgerðar styrkleikar

Hér er slóðin á að taka prófið – https://www.viacharacter.org/

Þú smellir á að þú ætlir að taka ,,Take free survey” og þá færðu upp síðu þar sem þú þarft að skrá þig (Register). Þú þarft að skrá þig svo inn , skrá inn nafn og email og svo þarna velur þú á hvaða tungumáli þú vilt taka prófið (búið að þýða á íslensku). gefur upp upplýsingar um þig svona þetta hefðbundna, kyn og email og velur þér leyniorð. Svo þegar þú ert þá komin inn á síðuna, velur þú fullorðinsprófið, eða Adult Via Character survey.

Í stað upplýsinganna um þig þá færðu að taka prófið ókeypis. Að taka prófið tekur um korter.

Svör þín á þessum prófum vistast sjálfkrafa. Þú getur því alltaf skoðað niðurstöðurnar. Og ef þér leiðist að taka prófið – tekur þú bara pásu og ferð svo inn aftur og þá hafa svörin þín vistast og þú getur haldið áfram þar sem frá var horfið.

Ég fékk styrk frá Embætti Landlæknis til að þýða hið þekkta og mikið rannsakaða VIA Strength Skapgerðar styrkleikaprófið. Það þurfti síðan að fara í hendur miklu fleiri, enda meiri vinna en ég taldi í byrjun t.d. sviðsstjóra Embættis Landlæknis og nemendahóps hjá Endurmenntun í jákvæðri sálfræði. En þetta allt er aukaatriði. Aðalatriðið er að nú er hægt að taka þetta próf Á ÍSLENSKU 🙂

Hér getur þú lesið meira um þetta próf https://hrefnagudmundsdottir.wordpress.com/2015/01/22/mannkostir/

Um er að ræða 24 styrkleikar sem verið er að mæla – út frá 6 yfirflokkum. Það er sjálfsagt að koma í einkatíma til mín til að rýna betur í niðurstöðurnar og skoða nýjar leiðir til að nýta styrkleikana – það hefur verið sýnt fram á með rannsóknum að vellíðan eykst við að finna nýjar leiðir við að nýta styrkleikana. Að nota styrkleika sína skapar framfarir og meiri vellíðan – eykur sjálfsþekkingu og er ein leiðin til aukinnar hamingju.

One comment

Leave a comment