Að ofnota styrkleika

Samkvæmt kenningum og styrkleikaprófi Dr. Martin Seligman, viastrengths.com, sem hann samdi ásamt Dr. Christopher Peterson 2003, þá eru styrkleikarnir 24. Við erum öll með þessa styrkleika, bara erum að nota þá mismikið og sumir höfða meira til okkar en aðrir. Það gefur okkur mikinn kraft og skýrleika, að nota efstu styrkleikana sína. Þá erum við í essinu okkar, skiljum heiminn. Meira um styrkleikana hér:

Ef þú ofnotar hins vegar einn styrkleikar, sem tekur dálítið mikið yfir, þá er hugsanlegt að þeir geta fara að snúast gegn þér. Dæmi:

  1. Fyrirgefning. Íhugaðu hvort þú sért jafn fyrirgefandi við sjálfan þig, eins og þú ert gagnvart öðrum. Ef þú ert að ofnota fyrirgefninguna í samskiptum getur það verið vísbending um að þú hafir látt sjálfsmat . Ef þig grunar að þú sért að ofnota styrkleikann fyrirgefning, skaltu biðja um viðbrögð frá nokkrum vinum sem þú treystir, til að fá víðara sjónarhorn.
  2. Sanngirni. Er raunverulegt hægt að vera of sanngjarn? já í því ljósi að þú þarft að velja þína slagi. Einnig við ofnotkun gæti það þýtt að þér finnist að allir ættu að fá það sama, eins og komin séu réttindi. En sanngirni þýðir ekki að allir fái það sama heldur að allir fái það sem þeir þurfa.
  3. Varfærni. Fólk sem ofnotar varfærni gæti hætt til að vera of upptekið af framtíðinni og hvað gæti hugsanlega gerst og þar með misst af tækifærinu að njóta stundarinnar. Að stunda daglega núvitund gæti hjálpað.
  4. Húmor. Að ofnota húmorinn sinn getur þýtt að þú sért að særa aðra, eða í besta falli að þú sért ekki eins fyndinn og þú heldur, kannski er ofnotkunin í einhverjum tilvikum vegna afneitunar, sé gríma til að forðast eitthvað sem er of erfitt.

Leave a comment