Einhver hluti af þér hefur áhyggjur af þér og er ekki sama og það er heilbrigður hluti af þér og það er fallegt.
Kannski áttu ekki pening fyrir sálfræðingi eða dýrri meðferð, en:
Áttu pening fyrir bókasafnskorti? þar er oft góðar bækur sem geta hjálpað.
Ertu með nettengingu, fullt af uppbyggilegu efni og ráð á youtube, hvernig á að lifa af trauma ofl.
Á youtube er líka fullt af öndunaræfingum, líka er til yoga nidra, slökun, hugleiðsluæfingar og öndunaræfingar sem hjálpa – og hjálpa þér að ná í skottið á sjálfri/sjálfum þér – og róar taugakerfið þitt
Köld sturta getur hjálpað
Geturðu gengið? þá hjálpa gönguferðir – sérstaklega að vera utandyra, jafnvel í náttúrunni, taktu fallegar myndir á leið á bókasafnið, taktu eftir tré … Hefur þú prófað spjallhópa á netinu?
Ekkert af þessu mun virka fyrir mig, segja sumir – já hvaða hluti inn í þér er að segja þetta, hvaða hluti af þér er sannfærður að ekkert mun virka og ekkert úrræði mun nokkurn tímann virka? sá hluti er ekki að standa með þér – nú skalt þú standa með þér 🙂

Þýtt úr þessu viðtali 🙂
Daniel G. Amen, geðlæknir og heilamynda-sérfræðingur – segir að
Hreyfing, góður svefn, stöðugur blóðsykur/næring, omega-3 og að leiðrétta mögulega D-, B12- og fólatskort, vinna með neikvæðar hugsanir/HAM, draga úr áfengi og vera í góðum tengslum við fólk – sé besta leiðin til að vinna með þunglyndi.
Þetta þýðir ekki að fólk sem tekur þunglyndislyf eigi að hætta á þeim vegna þess að það byrjar að ganga eða hreyfa sig. Hreyfing og HAM geta verið öflug meðferð með lyfjameðferð.

