Á þínu valdi er hvernig þú bregst við, hvað þú segir og hvað þú gerir, mörkin sem þú setur, hvað þú velur að rækta t.d. hugarfar, hvernig þú velur að koma fram við aðra, hvort þú leitar hjálpar og hvað þú gerir næst 🙂
Þú getur ekki stjórnað hvað aðrir segja eða hugsa t.d. um þig, hvernig aðrir hegða sér eða hvaða ákvarðanir aðrir taka né þeirra tilfinningum, þú getur ekki breytt fortíðinni. Þú hefur bara núið. Þú hefur ekki stjórn á veðrinu né ytri aðstæðum. Þú hefur ekki stjórn á aðstæðum sem koma óvænt uppá.


Echart Tolle hjálpar okkur að vera hér og nú 🙂 hann hefur hjálpað mörgum að sleppa tökum og njóta þess sem er … lífið er einfalt… allt er eins og það bara er …

Hér er ljómandi viðtal Ásdísar Olsen við Guðfinnu S. Bjarnadóttur um þriðja æviskeiðið en hún hefur greinilega tamið sér að fara reglulega yfir í lífi sínu hvað hún hefur stjórn á að laga og sleppa hendinni af því sem hún hefur enga stjórn á. Sjá: Rauða borðið 20. okt – Þriðja æviskeiðið

