
Ég verð að fá að halda hér til haga hressilegum skrifum Sifjar Sigmarsdóttur, 19. nóvember 2026 – um hvað við erum kvartsár – við höfum talað okkur inn í þetta sjálf – í stað þess að vaxa við áskoranir – þá erum við búin að borða okkur í vandræði – offita, sykursýki og andlegur kvíði – fólk fætt á áttunda áratug á áttunda áratug síðustu aldar, svokölluð X kynslóð, sýkvartandi. Gef Sif orðið: Heimsmeistaramótið í volæði:
Sif: ,, …getum við í alvörunni haldið því fram að vandamál samtímans séu verri en vandamál fortíðar? Að það sé meiri ógæfa að Microsoft Teams detti úr loftinu en að uppskeran bregðist? Að truflanir á flugsamgöngum séu meiri pína en að þurfa að verja vikum saman á sjó til að komast milli landa? Að löng bið eftir tíma hjá heimilislækni sé verri en ekkert heilbrigðiskerfi? Myndir þú í alvörunni vilja vera uppi á tímum útikamarsins frekar en vatnsklósettsins? Tímum húslesturs og rímnasöngs frekar en Netflix, Storytel og Spotify?
Þér er ekki ætluð hamingja
Í nýútkominni bók sinni, The Opposite of Happiness, færir bandaríski atferlishagfræðingurinn George Loewenstein rök fyrir því að maðurinn hafi ekki þróast til að vera hamingjusamur heldur til að lifa af.
Hann segir það hafa þjónað mikilvægu hlutverki í lífsbaráttunni að gera heldur meira úr hugsanlegum hættum en minna; skárra hafi verið að gera sér óþarfa rellu en að láta raunverulega ógn fram hjá sér fara.
Það sé því ekki hamingja og ánægja sem séu hið náttúrulega ástand heldur þvert á móti kvíði og eymd.
Er erfitt að vera ungur?
„Hefur nokkurn tíma verið erfiðara að vera ungur?“ spurði þáttastjórnandi á útvarpsstöðinni Times Radio viðmælanda sinn í vikunni.
Svarið var afdráttarlaust. Viðmælandinn kvað ungt fólk í dag búa við „meiri óvissu um framtíðina en nokkur kynslóð á undan henni“ vegna ógnar sem stafar af gervigreind.
En er það rétt? Hvað með framtíðarhorfur ungs fólks í Evrópu hinn 3. september 1939, þegar Bretland og Frakkland lýstu yfir stríði á hendur Þýskalandií kjölfar innrásar Þjóðverja í Pólland tveimur dögum fyrr? Hvað með atvinnuhorfur við upphaf iðnbyltingarinnar? Hvað með andlega líðan ungs fólks á tímum kaldastríðsins, þegar heimsendir var talinn handan hornsins af völdum kjarnorkustyrjaldar?”
sjá: Heimsmeistaramótið í volæði: Smelltu hér til að skrá þig – Vísir

University College London, sem voru kynntar í nóvember 2026.
Þegar Bretar fæddir 1970 voru bornir saman við fólk fætt 1958, á svipuðum aldri, kom þetta fram:
| Heilsufarsþáttur | Fædd 1958 | Fædd 1970 |
|---|---|---|
| Offita | 26% | 32% |
| Sykursýki | 6% | 9% |
| Telja heilsuna mjög góða eða framúrskarandi | 50% | 41% |
Og 26% kvenna fæddra 1970 greindu frá einkennum andlegrar vanlíðanar, samanborið við 15% karla í sama árgangi
