Dante; Hinn guðdómlegi gleðileikur

Ma ragionar per isfogar la mente

Hinn guðdómlegi gleðileikur eða Gleðileikurinn guðdómlegi (ítalska: la Divina Commedia) er ítalskt söguljóð sem Dante Alighieri skrifaði á árunum frá 1308 í Florence og lauk við rétt fyrir dauða sinn árið 1321

Ma ragionar per isfogar la mente:

Að koma hugsunum sínum í orð til að létta á huganum.

Ora, s’i’ voglio sfogar lo dolore … conviemmi parlar traendo guai:

Ef ég vil fá útrás fyrir sorgina, verð ég að tala, jafnvel þótt orðin beri með sér harm.

Þegar við fáum að nýta það sem býr innra með okkur, hvort sem er í starfi, sköpun, samtali eða öðru sem skiptir okkur máli, getum við fundið fyrir djúpri ánægju

Lifandi verur virðast njóta þess mest að fá að tjá sitt eigið eðli.

Maðurinn finnur gleði þegar hann fær að tjá sitt eigið sjálf.

Þegar við fáum að gera það sem við höfum áhuga á, nýta styrkleika okkar og tjá það sem skiptir okkur máli, finnum við að við erum sannarlega við sjálf.

Við erum hamingjusöm þegar okkur gengur vel, en ekki síst samt þegar við fáum að vera það sem við erum.

Að við séum ekki aðeins hamingjusöm þegar okkur gengur vel, heldur þegar við fáum að vera það sem við erum.

Dante hefur sína bók þar sem hann er villtur í skógi og fer í gegnum helvíti, ótta, víti, örvæntingu, þjáningu, glötun – svo fer hann í gegnum hreinsunareld – sjálfskoðun, umbreytingu, þroska, von … og að lokum – finnur hann ljós, hann finnur kærleika, hann finnur visku og hann finnur sælu. Ég get alveg séð jákvæða sálfræði í hinum guðdómlega gleðileik Dante!

Dante fjallar um trúarlega og siðferðilega vegferð sálarinnar, en jákvæð sálfræði rannsakar meðal annars með vísindalegum aðferðum hvað stuðlar að farsæld og blómstrun.

Dante, Viktor Frankl og Mihaly Csikszentmihalyi – þrír ólíkir hugsuðir, en allir koma úr þjáningu og leita að tilgangi og von og finna ljósið og skoða hamingjuna með augum þjáningunnar og leit að því að manneskjan finni sig aftur og verði virkir í samfélaginu aftur.

Ég sjálf valdi vinnu og félagssálfræði og hamingjufræðina, því mér fannst sálfræði eigi ekki aðeins að fjalla um það sem amar að fólki, heldur líka það sem gerir lífið þess virði að lifa því. Þegar ég var að fermast gat ég ekki fundið mig í þeim ritningargreinum sem presturinn valdi handa okkur og leitaði til hans og sagði að ef jesú væri fullkominn, þá vissi ég ekki hvort ég gæti gert hann að leiðtoga lífs míns, því ég væri svo ófullkomin. Svo sagði ég honum að ég væri að leit að gleðinni því lífið væri svo erfitt, hvort það væri eitthvað um húmor í biblíunni. Hann fann handa mér ritningargrein sem hann sagðist blanda úr tveimur setningum úr biblíunni og þetta varð að minni ritningargrein. ,,Þjónið drottni með gleði og fagnið með lotningu”.

Leave a Reply