Ný bók – hvaða mannlegu eiginleikar eru í dag mikilvægastir á vinnumarkaðnum?

Þetta – að mati Dr. Martin Seligman og Gabriella Rosen Kellerman – bók 2023:

PRISM

Prospection: Að ,,sjá” inn í framtíðina. Hæfnin að geta séð fyrir sér fram í framtíðina. Nýta hugmyndaflug sitt, gáfur og reynslu til að geta séð fyrir sér hvað gæti/muni gerast á komandi tímum. Nú er allt að gerst mjög hratt og stjórnendur hættir að hugsa langt fram í tímann. Enn sá sem sér smá fram í tímann – hann stendur fremst meðal jafningja

Resilience: Seigla. Að gefast aldrei upp, sjá nýjar leiðir, vera lausnamiðaður og útdeila von til annarra. Halda tengslum, vera tilbúin að læra nýja hluti o.fl.

Innovation: Nýsköpun – lesa í umhverfið og breyta og bæta og búa til nýtt – hvar er þörf, hvað viljum við

Creativity: Skapandi hugsun, þetta höfum við umfram tölvurnar, hugmyndaflug og skapandi hugsun (reyndar er gervigreindin farina ð sýna hugmyndaflug og vera skapandi og semja ritgerðir og semja lag sem Bítlarnir flytja!!)

Mattering: Að finna að þú skipta máli, þekkja sinn tilgang, þekkja tilgang starfsins síns, láta muna um sig í heiminum

PRISM – Sýn, Seigla, Nýsköpun, Sköpun og Tilgangur – íslenska útfærslan er þá SSNST 🙂

Þau vilja meina að ef við ræktum þessa eiginleika með okkur núna, þegar veröldin er á fleygi ferð og við vitum ekki einu sinni hvert, þá hjálpi það okkur sálarlega að rækta þessa þætti með okkur. Hugsaðu um – hver er tilgangur þinn? gerðu þér grein fyrir að heilinn þinn vinnur úr hugsunum þínum og tilfinningum í svefni og í hvíld, þá færðu einmitt oft bestu hugmyndirnar. Treystu veröldinni, treystu þér, lausnirnar koma til þín, þú ert miklu meira en talva! Hver er tilgangur þinn í lífinu? ég held að tilgangur lífsins sé að finna sér tilgang 🙂

Meira um svipað umfjöllunarefni – persónubundnir hæfnisþættir og framtíðin – hvað við höfum umfram tölvur: https://hamingjuvisir.com/2018/06/20/personubundnir-haefnisthaettir/?fbclid=IwAR2RQ2MmqJmVAXwKrS6B1X7DGCEgON7fnn0OuRnz7h6LVyaqB8V8UvMXJKc

Leave a comment