
vúhú!!! Takk Kvennfélög um allt land 🙂
„Vika einmanaleikans er haldin í annað skipti í ár, og hefst formlega í dag með lifandi dagskrá kl. 17 í Kringlunni,“ segir Jenný Jóakimsdóttir, verkefnastjóri í stýrishópi verkefnisins sem er á vegum Kvenfélagasambands Íslands.
„Hugmyndin fæddist á Landsþingi kvenfélaga á Ísafirði 2024 og þá kom upp sú tillaga að ræða einmanaleika, sem er vaxandi lýðheilsumál í nútímaþjóðfélagi.“
Jenný segir að ákveðið hafi verið í upphafi að finna ekki upp hjólið, heldur skoða sambærileg verkefni erlendis. „Við skoðuðum m.a. Marmalade Trust í Bretlandi sem er að gera mjög góða hluti, en vísunin í marmelaðið tengist Paddington birni, sem borðaði alltaf marmelaði. Hann var einmana á lestarstöðinni, en átti samt alltaf bros handa öllum,“ segir hún.
Í Bretlandi er sambærilegt átak haldið í júnímánuði, en Jenný segir að það hafi ekki gengið því þá er fólk í sumarfríum hérlendis. „Við ákváðum að halda vikuna í fyrra í októbermánuði, á eftir gulum september, sem er skylt málefni en ekki alveg eins, og síðan kemur bleikur október og svo jólin svo okkur fannst tilvalið að blanda þessum litum saman og nota appelsínugula litinn sem okkar tákn.“
Viðburðir og samverubingó
Markmið viku einmanaleikans er að vekja athygli á þessu vaxandi lýðheilsuvandamáli og vekja athygli á einföldum lausnum til að auka mannleg samskipti. „Við erum með viðburðadagatal fyrir vikuna á vefsvæðinu vikaeinmanaleikans.is, með alls konar tillögum að samveru sem er skemmtilegt að taka þátt í,“ segir hún. Þá er líka á vefsvæðinu samverubingó þar sem hægt er að merkja við það sem manni tekst að gera til að auka samskipti og jákvæðni í daglegu lífi.
„Þetta gekk mjög vel í fyrra og núna hef ég ekki við að skrá inn viðburði sem fólk er að leggja til,“ segir Jenný og bætir við að samvera geti verið alls konar. „Þetta þarf ekki að vera flókið, og ef viðburðirnir á vefnum eru skoðaðir er það allt frá göngutúrum, kaffispjalli og borðspilahittingi upp í dansleik í Hlégarði í Mosfellsbæ sem verður í kvöld. Síðan eru sex kvenfélög í uppsveitum Rangárvallasýslu með kvöldskemmtun fyrir konur á svæðinu í kvöld.
Appelsínugulir spjallbekkir
Hluti af verkefninu er að setja upp appelsínugula spjallbekki víða um landið þar sem hugmyndin er að örva samræður. Spjallbekkina má nú finna víða og hafa kvenfélögin verið afar rausnarleg að gefa þá í sín samfélög. Spjallbekkirnir minna okkur á að það er sjálfsagt að nýta hvert tækifæri til að hefja gott spjall. Stundum þarf maður bara að líta upp úr símanum og hringja í vin, frekar en að skrolla. Það eru þessir litlu hlutir sem skipta máli. Svo má ekki gleyma að brosa. Eins og skáldið Einar Ben sagði: Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt, og það er mikið til í því,“ segir hún og bendir líka á að tillitssemi í umferðinni þar sem fólk veifar af þakklæti séu svona viðbrögð sem gera samfélagið jákvæðara og láta fólki líða vel.
„Við getum öll gert eitthvað til að vinna gegn einsemd, og kannski er kominn tími til að hringja í gamlan vin!“
Viðtal úr mbl.is 2.10.26
Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt



