Að upplifa ,,vá” saman!

Það getur verið spennandi að skoða hvenær þú ert að upplifa eitthvað með öðrum, til dæmist list, verða fyrir innblæstri, fegurð, upplestur, eitthvað óvænt, eitthvað nýtt, einhvað magnað, upptendrast. Það er gott að tilheyra, það er gott að tilheyra hópi. Það er líka gott að finnast maður skipta máli og að maður sé að leggja sitt að mörkum.

Það er ágætt að staldra við og hugsa hvað gefur manni kraft og orku, löngun til að halda áfram. Það er ekki bara lyf sem hjálpa okkur, það eru gefnir út hreyfiseðlar, því hreyfing getur hjalpað með geðið og hjálpað með allskonar líkamlega kvilla, en það má líka ígrunda að gefa út list eða upplifunarseðla. Þar sem þér ber að fara á listasafn, eða fara á upplestur eða safn, verða fyrir innblæstri og taka þátt. Fá nýja hugsun, hitta nýtt fólk, fá lánaða dómgreind, viðhorf, kynnast einhverju sem þú hefðir ekki kynnst nema með því að fara á nýja staði og upplifa eitthvað sem þú hefðir ekki gert öðruvísi.

Allskonar samstilling á sér stað þegar maður hittir nýtt fólk, hvað þá ef upplifunin er ánægjuleg og á sér stað reglulega yfir ákveðin tíma – hjörtu fara að slá í takt og fólk fer að eiga eitthvað sameiginlegt sem hefur merkingu og tilgang. Það getur gefið seiglu, von og bjartsýni.

Hættum að mæla skref og förum bara að hafa meira gaman 🙂 það er ekki fullkomnun sem þarf að ná, það þarf bara að hafa gaman af því að lifa 🙂

Notum skynfærin, meiri samvera og meiri ánægja! einfaldleikinn virkar, bingó, dans og söngur :-), lesa bækur, kyrrðarstundir, hanga saman, hlaupa um í grasinu á táslunum 🙂

Týnum blóm!

Leave a Reply