Sjálfsmyndin okkar og vinnan – 60 ára

Sjálfsmyndin okkar er gjarnan svo tengd vinnunni okkar.

En nú er það þannig að fyrirtæki eru að draga saman seglin þennan veturinn, gervigreindin er að gera það að verkum að fyrirtæki eru að segja upp og harðar er í ári nú en undangengin ár.

Gott viðtal var á vísi í dag við Dr. Gylfa Dalmann um ma. þetta.

Hann bendir á að á Íslandi í samanburði við í Evrópu er atvinnuþátttaka 65 til 74 ára mikið meiri hér en þar, eða 11% í Evrópu en 35% hér.

Hér hefur alltaf verið mikið gert úr dugnaði og haldið að okkur að vinna göfgi manninn.

Yngra fólkið velur hins vegar ,,lífið” í ríkara mæli, talar um að taka sumarfrí með fjölskyldunni uppúr 17 ára og er þá að meina ferðalag til útlanda með kærustu/kærustum og frí fyrir skólabyrjun, vetrarfrí og jólafrí, fyrri kynslóðir litu á öll frí sem tækifæri til að ná sér í tekjur.

Þetta eru hugmyndir úr nefndu viðtali ef draga þarf úr atvinnuþátttöku á vinnustað:

Snemmbúin starfslok: Sveigjanleg starfslok geta verið raunhæfur kostur fyrir suma. Gylfi telur að nýta mætti þetta úrræði í ríkari mæli, til dæmis með því að bjóða starfsfólki að láta af störfum fyrr en ella. Margir þeirra sem nú nálgast starfslok eru fjárhagslega vel settir, meðal annars vegna lífeyrisréttinda og séreignarsparnaðar, og gætu því hugað að öðrum verkefnum, til dæmis innan íþróttahreyfingarinnar eða félagasamtaka.

Ráða ekki í störf sem losna: Hagræða með eðlilegri starfsmannaveltu, til dæmis þegar fólk fer í nám eða flytur utan.

Hlutastörf og deiling starfa: Gylfi telur mega gera meira af þessu á Íslandi. Á dögunum hitti hann til dæmis einstakling sem er í 20% starfi og nokkrum dögum síðar annan einstakling sem er í 50% starfi. Möguleikar á útfærslum í þessu séu margir.

Kalla eftir tillögum: Spyrja hreinlega starfsfólk hvort einhver sé tilbúinn að hætta og bjóða þá starfslokaleið.

Á sama tíma var Samstöðin með hressilegt viðtal við Dr. Árelíu Eydísi Guðmundsdóttur um lífsreynsluna og hvað lífsskeiðsfræðin sem hún hefur haft áhuga á undangengin ár segja um árin milli 60 og 90 ára, en hún bendir á Jane Fonda sem dæmi – því hún er einn mesti activisti bandaríkjamanna og segir að sín sl.l. 30 ár séu hennar hamingjusömust – en hún er á níræðisaldrei. Árelía vitnar í ýmsa og segir að við eigum ekki að:

ekki retire heldur rewire (endurstilling, ekki setjast í helgan stein1, enduruppgövta sig!)

Finndu nýjan tilgang, ný viðfangsefni og nýja lífsfyllingu – við finnum að tíminn fyrir framan tölvuna – jah.. við viljum núna eitthvað annað, meira ,,alvöru líf” takk fyrir. Þetta færir ,,breytingarskeiðið okkur”. Við viljum meira alvöru líf held ég, meira ,,authentic”. Lífsreynslan hefur fært okkur sjálfsþekkingu og við viljum lifa meira eigin lífi byggt á okkar löngunum,áhuga og styrkleikum.

Búðu til eitthvað ævintýri að hlakka til, hafðu peningamálin í lagi, borðaðu minna og hreyfðu þig meira – segir Árelía Eydís, og Gylfi Dalman segir líka – farðu í símenntun, endurmenntun og endurnýjaðu þig á vinnumarkaðnum svo þú úreldist ekki – Árelía segir það reyndar líka 🙂

Heimildir:

Undir­búningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? – Vísir

Rauða borðið 25. nóv. – Reynslunni ríkari

Leave a Reply