Upplifunarganga, sama gangan, ólíkar upplifanir

Ég fer gjarnan með hópa í svokallaða ,,upplifunargöngu”. Þá gjarnan læt ég hópana ganga í þögn, helst með penna og blað (á góðviðrisdögum). Jafnvel göngum við bara með eina regnhlíð og sá sem á henni heldur stýrir hvert skal haldið – og við hin eltum – en reglan er samt að ganga rólega því við ætlum að njóta – og við gætum hvers annars, allir eru með, enginn gleymist, við fylgjumst að yfir götur og svoleiðis 🙂 en við ætlum að soldið fylgja athyglinni – skynfærunum, leyfa skynfærunum að njóta sýn – hverju tökum við eftir …. er lykt, hljóð, hvað strýkst við húð, viljum við snerta, hvað grípur athyglina, við horfum upp, niður, til hliðar, viljum við fara úr skónum eða…. leyfðu þér að skynja… og við skrifum niður .. já eða tökum myndir ….

síðan er sest niður og rætt… einn í einu – farið hringinn. Í hvaða göngu varst þú? Hverju tókstu eftir?

Sama gangan, en samt – samt ekki sama gangan.

StyrkleikiHugsun eða viðbragð
SköpunMig langar að mála þetta tré eða semja um það ljóð.
Áhugi – forvitniHvað skyldi þetta tré vera gamalt? Hvernig vex það?
Gagnrýnin hugsun – dómgreindAf hverju vex önnur hlið þess betur en hin?
NámsástMig langar að læra meira um tré og samskipti þeirra
VíðsýniTréð kennir okkur ýmislegt um árstíðir mannsævinnar
HugrekkiMig langar að klifra upp í tréð!
ÞrautseigjaHugsa sér alla stormana sem það hefur staðið af sér
HeiðarleikiTréð þarf ekkert að þykjast vera annað en það er
LífsþrótturMig langar að hlaupa, klifra og leika mér hérna!
ÁstHér myndi ég vilja sitja með einhverjum sem mér þykir vænt um
GóðvildSkyldi tréð þurfa vatn eða einhverja umhirðu?
FélagsgreindHvernig líður fólkinu sem stendur hér með mér?
TeymisvinnaVið gætum öll hist hér og gert eitthvað saman
SanngirniAllir ættu að hafa aðgang að svona fallegri náttúru
LeiðtogahæfniÉg ætla að fá hópinn til að gróðursetja fleiri tré
FyrirgefningÞótt greinar hafi brotnað heldur tréð áfram að vaxa
AuðmýktÉg á margt ólært af náttúrunni
VarfærniEr öruggt að klifra í þessum greinum?
SjálfstjórnMig langar að koma hingað daglega og æfa núvitund
FegurðarskynSjáðu birtuna, litina, formin og mynstrið í berkinum!
ÞakklætiHvað ég er heppin að fá að njóta þessarar stundar
VonÞótt tréð sé lauflaust núna kemur vorið aftur
HúmorÞetta tré er greinilega með verri hárdag en ég!
AndlegheitÉg finn fyrir tengingu við lífið og eitthvað stærra en sjálfa mig.

Hvers vegna heitir tré hér að ofan Joshua-tré?

Samkvæmt munnmælum gáfu mormónar á ferð vestur um Bandaríkin á 19. öld trénu þetta nafn. Greinarnar minntu þá á Jósúa úr Biblíunni með útrétta handleggi, vísandi þeim veginn.

Tréð varð þannig tákn um leiðsögn, trú og von á erfiðu ferðalagi. Uppruni nafnsins er þó ekki fullkomlega staðfestur.

Leave a Reply