Söngur um lífið
Boudleaux Bryant/Þorsteinn Eggertsson
Í öðrum hvorum söng sem nú er sunginn
er tómt svartsýnisraus.
Og textaskáldin sýnast mörg sorgum þrungin
já, langt upp fyrir haus.
En ég vil heldur syngja’ um björtu hliðarnar
á ævinnar braut.
Ég er ánægður ef ég á söng í hjartanu
og saltkorn í minn graut.
Já, syngjum um lífið
og lofum það líka,
þó að peningana skorti
getur hamingjan oft gert menn æði ríka.
Það er nógur tími til að
hugsa’ um dauðann eftir dauðann,
njóttu lífsins meðan kostur er.
Ég syng bara’ um lífið
og syngdu með mér.
Þó að jarðskjálftar, eldgos, frost og fárviðri
sé fréttaefni
þá er fegurðin og ástin, já, og sólskinið
hið rétta efni
sem er þess virði að það sé leitað uppi
og notið sé vel.
Því að bjartsýni‘ og bros og gleði’ í sálinni er best, það ég tel.
Já, syngjum um lífið
og lofum það líka,
þó að peningana skorti
getur hamingjan oft gert menn æði ríka.
Það er nógur tími til að
hugsa’ um dauðann eftir dauðann,
njóttu lífsins meðan kostur er.
Ég syng bara’ um lífið
og syngdu með mér.
Ef leiðist þér að hlusta’ á nöldur
um fátækt og púl
má alltaf grafa upp lukkusöngva
sungna af Rúnari Júl.
og ef þú vilt fá skammt af ánægju’ og gleði
og hamingjuvon
þá ættir þú að hlusta á texta eftir hann
Þorstein Eggertsson.
Hann semur um lífið
og lofar það líka,
þó að peningana skorti
getur hamingjan oft gert menn æði ríka.
Það er nógur tími til að
hugsa’ um dauðann eftir dauðann,
njóttu lífsins meðan kostur er.
Ég syng bara’ um lífið
og syngdu með mér.
Já, syngjum um lífið…
