Seigluþjálfun – netnámskeið, hefst 7. mars kl. 10-12

Seigluþjálfun er 8 vikna námskeið, þar sem farið er yfir seiglutegundir, styrkleika, gerð áætlun um að blómstra, farið yfir viðhorf t.d. vaxandi viðhorf og stöðnuð viðhorf (Carol Dweck) og farið yfir kenningar um von, lært hjálparleysi og leiðir til að blómstra. Farið er yfir hamingjuvísindi og jákvæða sálfræði og reynt að auka sjálfsþekkingu til að geta betur varðað eigin leið.

Seigla er það að halda áfram, finna nýjar leiðir, setja sér markmið og ná þeim, taka u-beygju þegar þarf. Seigla er að standa af sér erfiðleika og hindranir og ná árangri og best er ef við náum að styrkjast, eflast, læra nýja hluti og vaxa af styrk.

Næsta seiglunámskeið er á netinu og hefst á föstudaginn 7. mars kl.10-12. Um er að ræða sex næstu föstudaga og svo eru innifalin 2 markþjálfunarviðtöl, í byrjun og við lok námskeiðsins.

Skráning á sér stað hér: hamingjuvisir@gmail.com eða hrefnagudmunds@simnet.is. Verð 74.000. Styrkt af helstu stéttarfélögum.

Ég var með erindi fyrir félag mannauðsfólks í morgun (3.3.25) um seiglu og jákvæða leiðtogafærni, hvernig hægt er að nýta jákvæða sálfræði betur inn á vinnustöðum og því vil ég árétta þetta námskeið.

Leave a comment