Kim Kameron talar mikið um að það sé ekki nóg að vera eingöngu hugfangin af neikvæðum frávikum, heldur eigum við ekki síst að leita að jákvæðum frávikum, eða eiginlega frammúrskarandi sögum og árangri á vinnustöðum og þar með sköpum við svokölluð ,,helotropical” effect sem bara vaxa og styðja vinnustaði og starfsmenn til enn frekari vaxtar og framúrskarandi árangurs – langt umfram væntinga. Uppörvandi var að hlusta á hann,er hann hélt 2ja daga vinnustofu vorið 2025 hjá Endurmenntun HÍ, enda var ég glöð að eiga mynd mynd af mér milli þeirra hjóna 🙂
Jákvæð leiðtogafærni skv. Kim Cameron samanstendur af fjórum stöplum – jákvæð samskipti, jákvæð merking, jákvætt andrúmsloft og jákvæð sambönd.Þegar þetta fernt fer saman, geta ótrúlegustu hlutir gerst. Kim Cameron vill að menning vinnustaðar byggi á samkennd, fyrirgefningu og þakklæti – mjög öflug gildi þegar upp er staðið.
Jákvæð leiðtogahæfni snýst ekki um að vera alltaf jákvæður. Hún snýst um að skapa aðstæður þar sem sannleikur fær að heyrast, fegurð fær að njóta sín og gæska fær að leiðbeina ákvörðunum.
Þegar Kim Cameron talar um samskipti, talar hann um orkugjafa og orkuþjófa, hann talar um aðferð til að greina hver gefur – og fela þeim ábyrgð og að leiða verkefni og að orkuþjófar séu hins vegar með verkefni sem hafa minni áhrif á samskipti. Hann talar um að hlúa að vináttu og uppbyggilegum samskiptum og hvað það hefur bein áhrif á vagus taug, hormóna sem styrkja, á hjarta og æðakerfið, á ,,samhljóm” líkamans (hjarta-heilabylgjur – samhljóm) sem hefur áhrif á heilsu – og eflir ónæmiskerfið – styrkir siðferðishegðun og kemur í veg fyrir fjarvistir, veikindi og kulnun.
Að skapa jákvæð tengsl á vinnustað er ekkert nýtt hugtak. En það sem við gleymum oft er hversu mikil áhrif þessi tengsl hafa – ekki bara á líðan fólks, heldur líka á líkamlega heilsu, lífslíkur og árangur í teymum og skipulagsheildum. Þess vegna er mikilvægt að minna sig reglulega á þetta.Bestu tengslin eru þau þar sem fólk leggur sitt af mörkum til annarra – ekki bara tekur á móti stuðningi. Þegar við gefum af okkur styrkjum við bæði sambandið og okkur sjálf.Það skiptir líka máli að rækta jákvæða orku á vinnustaðnum og styðja við þá sem smita út frá sér jákvæðni. Slíkir einstaklingar hafa oft meiri áhrif en við gerum okkur grein fyrir.Að lokum sýna rannsóknir að þegar fólk og skipulagsheildir læra að þekkja og nýta styrkleika sína, eykst líkurnar á því að þau nái framúrskarandi árangri – jafnvel umfram það sem talið var mögulegt.
Tilgangur:Að tilheyra og ekki síst að finna að starfið skiptir máli og þú skiptir máli- hjálpa starfsfólki að finna gildi starfs síns, að það sem það gerir skiptir máli í stóru myndinni – skiptir miklu máli. Í nútíma samfélagi þarf meiri hjálp en áður að sjá þinn hlut. Þegar starfsmenn heyra t.d. um að starf þeirra hefur haft jákvæð áhrif á líf fólks, upplifir það sterkt tilgang með starfi sínuog afköst aukast.
Við viljum vinna að sameiginlegum markmiðum að gera gott, skila okkar, að bæta heiminn. Þannig líður okkur betur.



Meira um þetta síðar – enn þangað til – ÞETTA – Ted:
Inngripin í bókinni eru þessi:
Endurgjöf
PMI viðtöl – allt er upp á borði – trúnaður og traust og virðing – mánaðarleg viðtöl og líka ,,tékk inn,, eftir þörfum
Styðjandi samskipti
Merking í starfi – hvernig hefur vinnan áhrif á aðra
Samkennd – taka eftir og deila upplýsingum
Fyrirgefning – viðurkenna og draga lærdóm af, byggja upp
Þakklæti – nota á fundum, til skjólstæðinga, til samstarfsfólks
Jákvæð orka – greina orku og áhrif, draga markvisst úr neikvæðri orku
Styrkleikar
