Taugakerfið okkar þolir illa óvissu. Taugakerfið er alltaf að leita að öryggi og er hannað til þess. Við erum hönnuð til að vita hlutverk okkar, viljum skilja leikreglur og finna okkur stöðu.
Þegar okkur vantar öryggi, þá upplifum við kvíða og streitu sem þýðir að við förum að leita að skjóli.
Endum annars hægt og rólega jafnvel í algjöru verkstoli og ringulreið. Þá er taugakerfi í ójafnvægi og með þessu er það að reyna að vernda sig.
Kulnun í dag getur stafað af mörgum ástæðum, það er álag í gangi, óvissa, breytingar á tengslum og ef okkur finnst við ekki hafa stjórn á aðstæðum og hvað þá lengi, þá líður okkur illa. T.d. í vinnu, hvað er verið að mæla og af hverju, af hverju er ekki verið að mæla það sem skiptir máli s.s. líðan í vinnu, heldur bara árangur? Ef okkur finnst við ekki hafa neina hafa stjórn á aðstæðum, þá líður okkur ekki vel. Þetta er svona uppskrift að þessari tilfinningu: “Ég er að gera helling…en veit ekki hvort það skiptir nokkru máli!”
Mörk eru jafnvel ekki virt á heimili- er heimilið griðarstaðurinn eða vinnustaðurinn? tengjum við sófann við tölvu? eða erum við hérumbil alltaf á kvöldin í sófanum eða tölvunni? Hvar er vinnustaðurinn… heima eða í sófanum!
Hvenær fær heilinn skýr skilaboð um að nú er hvíld og ró?
Jafnvel slökkt á öllum græjum og jafnvel bara kertaljós og þögn? Að þú heyrir í sjálfum hér og þinni líðan og innri rödd?
Félagslegi þátturinn:
Nú eru 30% heimila með einum íbúa. Við höfum samskipti í gegnum skjá og á bak við það er reikniforrit sem segir okkur til (algorithmi) og velur ofan í okkur efni. Færri ,,ritual” tengsl (fastir liðir).
Við erum tengd, en kannski ekki alltaf með samveru.
Neinei, þetta er ekkert eitthvað ,,allt var betra hér áður fyrr?” – í dag búum við á Íslandi við mikla möguleika, tækifæri, valfrelsi og frelsti til athafna, við ráðum okkur sjálf. Enn fórnirnar eru þarna – óskýr hlutverk, hver og einn er eigin herra og öryggið óljóst þótt við höfum mikil réttindi. En við verðum líka að bera ábyrgð… á okkur.
Við erum stöðugt að smíða nýtt samfélag og smíða okkur sjálf í leiðinni.
Því er hollt að velja sér eitt orð fyrir árið og jafnvel brjóta árið upp í ,,fjögur tímabil” yfir árið.
Við þurfum að láta heiminn vera skiljanlegan fyrir heilann til að hjálpa honum að slaka á og halda sjó.
Setjum fókusinn á að vera gerendur í eigin lífi, ekki fórnarlömb.
Hlúum hvert að öðru, lærum mörk, mælum merkingu enn ekki bara afköst og finnum okkur stað í samfélaginu, ekki bara stafrænt.



