Merking og tilgangur i starfi

Hvenær fannstu síðast að þú skiptir máli í vinnunni?

Hvað var þá að gerast?

Hverjir njóta góðs af vinnunni þinni?

Líf hverra snertir starfið þitt?

Ef þú myndir hætta á morgun í vinnunni, hver myndi finna fyrir því?

Hverju í starfinu ertu stoltust/astur af?

Hefur starfið þitt einhver áhrif inn í samfélagið, sem þú sérð ekki strax?

Var eitthvað erfitt í vinnunni í dag eða leiðinlegt, sem skipti samt máli? og fyrir hvern? Hvernig?

Hvernig getur starf haft merkingu, þótt það sé bara starf… ekki eitthvað ástríðufullt.. heldur bara það.. starf?

Áttu minningu af því að yfirmaður hjálpaði til að minna á tilgang starfsins eða vinnustaðarins?

Hvernig getur leiðtogi eða yfirmaður eða fagfélag, minnt á að starf þitt skiptir máli?

Að finna og finnast starf sitt skipta máli, gefur lífinu gildi.

Við vinnum jú stóran hluta af okkar degi, okkar lífi. Það skiptir máli hvaða starfi við sinnum, það fer vel á því að finna sér starf þar sem við njótum okkar, þar sem eftir því er tekið að við leggjum okkur fram og við vöxum og döfnum og skilum af okkur góðu dagsverki.

Hvað þarf til? jú við þurfum soldið að þekkja okkur sjálf, hvað við getum og hvað við viljum, en kannski er aðalatriðið að það liggi fyrir hvað ætlast er til af okkur, skýr starfslýsing og skýrar verklýsingar og svo er farið reglulega yfir hvað gekk vel og hvað má betur fara. Er ekki örugglega gengið hér til góðs?

Ef við finnum að starfið skiptir máli fyrir okkur persónulega, þá erum við tilbúnari að skuldbinda okkur og leggjum meira á okkur. Það er valdeflandi og við höfum af starfinu meiri ánægju og það gefur okkur sjálfstraust og vellíðan. Þetta vinnur gegn depurð og streitu. Við erum þá síður frá vinnu, færri forföll og færri veikindadagar. Við sýnum líka af okkur betri siðferðishegðun -stelpum síður og mætum fyrr og sínum af okkur betri hliðar o.s.frv. Að starfa við það sem skiptir okkur máli gæti fært okkur frá því að sýna viðunandi hegðun og yfir í framúrskarandi 🙂

Viðhorf til atvinnurekendans.

Ef þú vinnur að gildi þin og fyrirtækis þíns og atvinnurekendans fara saman, þá sýnir þú eðlilega meiri hollustu og ert ánægðari með vinnustaðinn, sem ýtir undir betri samskipti við samstarfsfólk og meiri ánægju með verkefnin sjálf.

Það er hollt að spyrja sig reglulega – er ég rétt manneskja á réttum stað.

Það er líka hollt að yfirmaður spyrji sig, er ég að hjálpa mínu fólki að sjá og minna á tilgang starfsins, ahrifin sem við höfum, gildin, af hverju við skiptum máli og það sem við erum að gera?

Í nútíma samfélagi, eru mikil áreiti og margt sem kallar, enn við erum félagsverur og það skiptir okkur öllu máli að tilheyra og skipta máli. Upp á velferð og vellíðan!

Leave a comment