Það var stórfenglegt að hlusta á Dan Tomasula á ráðstefnunni í Dublin, loksins maður sem var að tala inn í það sem ég er að gera á mínum námskeiðum.
Til að hjálpa fólki að líða vel, skapa sáttan huga, þurfum við oft að sættast við fortíðina, vinna með hér og nú og geta horft fram á veg með jákvæðum huga.
Hans kenningar byggja á þessari úrvinnslu – í þessari röð – við þurfum fyrst að vinna með fortíðina – síðan með hér og nú – og síðan vinna með framtíðina:
Fortíðin þarf ekki að halda okkur föstum. Við getum endurskoðað hana með þakklæti og fyrirgefningu. Nútíðin er þar sem við lifum raunverulega. Þar hjálpa núvitund, flæði og forvitni okkur að vera til staðar. Framtíðin gefur okkur stefnu. Þar skipta von og bjartsýni máli.
Hann talaði líka um traust. Það þarf að spyrja fólk, hverjum treystir þú? hefur þú tilhneygingu til að treysta öðru fólki? sjálfum þér? hvorugu? báðu? og það þarf að vinna með traust ef ekki er traust til staðar. Ef ekki er traust – vinnst ekkert. Sjá neðstu glæruna.
| Tímavídd | Dæmi um íhlutanir eða styrkjandi þættir |
|---|---|
| Fortíðin | Þakklæti (gratitude), fyrirgefning (forgiveness), hugarró (serenity), ánægja (satisfaction), stolt (pride) |
| Nútíðin | Flæði (flow), núvitund (mindfulness), forvitni (curiosity), áhugi (interest), góðvild (kindness), ást (love), gleði (joy) |
| Framtíðin | Bjartsýni (optimism), ásetningur (intention), von (hope), innblástur (inspiration) |



Hann hefur skrifað margar bækur og hér er hans síða:
DAN TOMASULO.com

