Vinusálfræðingurinn Michael West hefur lagt sig fram um að skoða hvað einkennir menningu í heilbrigðiskerfinu þar sem hlutirnir ganga best, starfsfólk endist og mætir vel, líður vel og sjúklingum gengur vel – niðurstaðan er samkennd, að samkennd einkennir leiðtogastíl og menninguna á vinnustaðnum.
Hann bendir á að það ætti ekki að vera flókið í rauninni að viðhalda helgun í starfi meðal starfsmanna í heilbrigðisgeiranum því þar er eitt mest metnaða starfsliðið og með mesta helgun í starfi í upphafi, fólk sem hefur valið sér menntun eftir áhugasviði og hefur ásríðu og vilja til að gera vel.
Hann vill meina að leiðtogar á vinnustaðnum eigi að leggja sig eftir að skapa menningu samkenndar, þar sem vinnustaðurinn lætur sig hvert annað varða, sýnir hluttekningur, tekur eftir því hvað fólk er að ganga í gegnum og tekur þátt eða sýnir verklegan stuðning eins og við á t.d. safnar fyrir eða léttir undir eins og hægt er.
Hann talar um fjögur stig hluttekningar: Að veita athygli, að skilja hvað veldur, að finna til með manneskjunni g að grípa til aðgerða til að hjálpa (compassion, ekki bara empathy – compassion felur í sér að gera eitthvað í stöðunni).
Michael West er stórt nafn í vinnusálfræði í Bretlandi og hefur rannsakað starfsfólk í sjúkrahúsum og breska heilbrigðiskerfinu, NHS Nationl Health Service.
Hann bendir á að þar sem er samkennd í menningunni og í stjórnunarstílnum, það skilar sér í líðan starfsfólk, gæði þjónustunnra, öryggi sjúklinga, nýsköpun og árangri skipulagsheildarinnar.
Niðurstöðurnar voru mjög afgerandi: Minni kulnun, meiri starfsánægja, meiri þátttaka, meiri nýsköpun, minni starfsmannavelta, betri upplifun sjúklinga, jafnvel lægri dánartíðni á sumum sjúkrahúsum og minni streita.
Vídeó:
Michael West: Compassionate and inclusive leadership
Professor Michael West: Leadership in today’s NHS
Og meira – aðrar heimildir:
Michael West – Lancaster University
Michael West | The King’s Fund
NHS England » What does compassionate and inclusive leadership mean to us?






Bók hér að ofan
