Það er ákveðin þróun innan jákvæðrar sálfræði sem hefur með að gera að skoða hvernig við getum elst sem bst – well being and ageing.
Hollendingurinn sem varð 110 ára – einn sá fyrsti sem varð 110 ára

Geert Adriaans Boomgaard (21 September 1788; baptised 23 September 1788[1] – 3 February 1899) was a Dutch supercentenarian and is generally accepted by scholars as the first validated case on record.[2][3]
Gróflega áætla í dag, 2026, að um 150–225 manns nái 110 ára aldri um heiminn.
Nú er talað um lífaldur og aldur með lífsgæðum (life span og health span). Þ.e. hvað þú getur lifað lengi og hvað þú getur lifað lengi með sæmilega heilsu.
Sá hluti ævinnar sem þú lifir við góða líkamlega, andlega og félagslega heilsu er (health span).
„Hvernig lengjum við þann tíma sem fólk er hraust, sjálfbjarga og líður vel?”
Jákvæð heilsa – samanstendur af:
- Regluleg hreyfing, sérstaklega styrktarþjálfun og jafnvægisæfingar
- Góður svefn
- Hollt og fjölbreytt mataræði
- Reykingarleysi
- Hófleg eða engin áfengisneysla
- Sterk félagsleg tengsl
- Tilgangur og merking í lífinu
- Virkni og þáttaka, halda heilanum virkum með námi, lestri og nýjum verkefnum
- Að stjórna streitu á heilbrigðan hátt
Velferð, tilgangur, jákvæð tengsl, virkni, þátttaka – tengist ekki bara hamingju, heldur betri heilsu eftir því sem aldurinn færist yfir. Fólk með meiri sálræna vellíðan virðist að meðaltali vera líklegra til að viðhalda betri heilsu og sjálfstæði, þó það sé ekki einfalt orsakasamband.


Eldra fólk á vinnustað er mjög mikilvægt vegna þess að :
það kemur með aðra tegund greindar að borðinu. Sú greind kallast líka viska, reynsla – og kallast ,, kristölluð greind” eða crystallized intelligence – uppsöfnuð þekking, reynsla, dómgreind, orðaforði, skilningur á fólki og hæfileikinn að sjá hlutina í stærra samhengi og taka fleirri þætti inn í myndina – sem sagt. Eldri starfsmenn geta sem sagt séð lausnir sem aðrir sjá ekki, tekið yfirvegaðri ákvarðanir, metið áhættur betur, miðlað þekkingu, verið mjög góðir í að leiðbeina (mentoring) og róað taugar sem hjálpa teymum. Aldursfjölbreytt teymi geta því skilað bestum árangri – en ekki einsleit teymi – þ.e. ef verkefnin eru flókin og það þarf samstarf. Samkennd, tilfinningastjórnun, yfirsýn og að samþætta – þá er gott að hafa reynslubolta sem eru vel virkir og með fingurinn á púlsinum :-). Við þurfum öll að tilheyra – og þroskaðra fólk hjálpar okkur að tilheyra!
Greind sem fylgir gjarnan yngra fólki kallast fljótandi greind (fluid) – þá erum við fljótari að leysa ný vandamál, hugsa hratt, greina mynstur og vinna hratt úr upplýsingum 🙂

