Stafrænir flakkarar, Digital nomads

Breyting á vinnumarkaðnum síðast líðin 10-15 ár er sú að til er orðin stétt skapandi frumkvöðla sem fer um heiminn, býr hér og þar og vinnur á ,,sameiginlegum skrifstofum” (co working vinnurými) , leigir sér þar sem er ódýrt að búa og skapar sér verkefni – býr til gervigreindarverkefni, forrit, öpp, kannski við hönnun, markaðssetningu, við myndbandagerð, AI eða við ráðgjöf.

Þau búa þar sem ódýrt er að búa/leigja, þar sem er gott netsamband og þar sem aðrir frumkvöðlar eru – búa sér þannig til samfélag – skrifstofan er því samfélagið þeirra, félagsmiðstöðin og svo er unnið að hugarefnum sínum.

Staðir eins og Balí, Taíland, Portúgal, Mexíkó, Georgía, Víetnam, Indónesíu

Nú er hugsunin; Læra það sem ég þarf, byggja mér verkefni, selja, læra meira, nýtt verkefni og nýtt fyrirtæki. Kaupi mér netnámskeið, læri af youtupe, kaupi mér mentor, nota gervigreindina og les bækur – þannig læri ég það sem ég þarf, þegar ég þarf það. Snýst um hæfni.

Ekki lengur háskólagráða – starf og svo eftirlaun.

Þetta hentar auðvitað alls ekki öllum, það munu auðvitað ennþá margir vilja sín orlof, eftirlaun, tilheyra samfélagi sem er staðbundið, eiga sín börn, hafa stöðugar tekjur og byggja upp líffeyri. Það mun alltaf þurfa kennara, lækna, hjúkrunarfræðinga,iðnaðarmenn, opinbera starfsmenn, verkfræðinga o.s.frv.

Kannski er þetta 1-3% starfandi fólks í dag.

Flest frá ríkari löndunum s.s. USA, Kanada, Bretlandi, Norðurlöndum, Þýskalandi, Hollandi, Frakklandi, Ástralíu, Nýja Sjálandi – frá löndum sem hafa hátt menntunarstig og tala góða ensku,

Þetta eru einstaklingar sem elska nýja menningu, læra hratt, leiðast rútína, vilja prófa nýjar hugmyndir. Þetta er eitthvað sem hentar helst ungu fólki, margir láta sig dreyma, en færri framkvæma. Eftir 30 ára kannski fara að setjast að, stofna fjölskyldu, hægt og rólega fara að finna sér einn stað að vera mest á og reka kannski fyrirtæki sitt þaðan hægt og róleg og eftir fertugt kannski komin á einn stað skv. kenningum.

Þarna takast á tveir sterkar þarfir okkar – annars vegar að fá að ráða sér sjálfur – hvað við gerum, hvernig og hvenær – þörf að fara í flæði og ráða sér sjálfur – sjálfstæði – autonomy – ráða yfir eigin lífi – hafa stjórn á sínu lífi og hins vegar að mynda góð og sterk tengsl – að upplifa ekki tóm, einsemd, að finnst þú tilheyra. Bæði skiptir máli upp á vellíðan og hamingju. Þú þarf að gæta að því að næra tengslin á staðnum, gegnum verkefnin og við gömlu vinina – og svo hafa þetta sjálfstraust og þennan kraft og hugrekki að láta vaða – taka áhættur og þora að stökkva og bara sjá hvað gerist – hafa trú á þér 🙂

Digital Nomad World – Join our Leading Global Nomad Community

A Beginner’s Guide to Becoming A Digital Nomad

Leave a comment