Móðir Georgíu – stytta í höfuðborginni Tblisi 20 metra há
Hún er með vín á annarri hendi og sverð í hinni
Móðir Georgíu hefur þurft og þarf, að vera við öllu búin – Rússland, Tyrkland, Aserbaídsjan og Rúmenía (og persar, arabar og rússar og mongólar áður -ráðist inn)
Vín, er uppgötvun Georgíu, uppruni víns er þaðan og fyrir 8000 árum. ,uppruni rauðvíns og hvítvíns er af þessu svæði skv. heimildum og þykir vínið þarna sérstaklega bragðgott og er ennþá gert hér með gamla laginu

Rússar, Persar, oft hernumið land, herjað að og gerir enn, svo já það er víst best að vera við öllu búin, enda borgin Tblisi verið oftar undir yfirráði annarra en að vera sjálfstæð, frá upphafi – á s.l. 1600 árum.
Þetta kallar maður að vera lífsreynd borg með mikla seiglu, hún ber þess merki. Ægifögur, saga hvert sem litið er, maður verður forvitin, vill vita meira og meira, engin hús eins, allar tegundir arkitektúra enda hefur hér oft verið byrjað aftur frá byrjun.
Í gömlu hverfunum eru trén mikið stærri en húsin, mörg húsana algjörar hallir – margar í niðurnýðslu, sum endurbyggð og svo glæsileg og nútímaleg, mörg þá hótel og búin því allra flottasta, hér er að finna Art Nouveau hús og Art Deco handrið, blokkir af sovéskum stíl, glerbyggingar, georgískar kirkjur, persknesk böð og jafnvel í sömu götu og hér er stórkostlegt að fá að koma! Borgin er soldið eins og hún hafi verið yfirgefin á hátindi … og stórhýsi fengið að grotna niður.
Að vera í Georgíu er maður á mörkum Evrópu, Miðausturlanda og Mið-Asíu – maður er þar með á fjölbreyttustu menningarkrossgötu heims!
Fólki hér er einstaklega gestrisið, hér er góður matur, ekki mikið kryddaður og þeir leggja mikla áherslu á að kynna sína menningu. Þeir eru með eigið letur og eigið stafróf og þetta tungumál er hvergi annarsstaðar í heiminum.










Takk:
Madloba
მადლობა
engnir hástafir né lágstafir – allir jafn stórir




Ég hitti fólk í ferðinni frá Kazakhstan og Kyrgyzstan, svo er til Tajikistan – fyrirgefiði ég eiginlega vissi ekki að þessi lönd eru til. Sumir sgja að Georgía sé í Asíu og þá eru þetta mörkin:

