Mér var boðið í brúðkaup. Í Georgíu.
Þvílíkt ævintýri :-). Þvílíkt land, rík og löng saga, dásamlegt fólk, gestrisni, matur, menning og vín! Löööng saga, mikil barátta fyrir að halda sjálfstæði – oft verið hertekin af nálægum löndum… og núna er 20% af Georgíu í haldi Rússa. En þeir halda í sitt sjálfstæði með því að hafa eigið tungumál, hafa þessi háu fjöll sem torfæru og trúin heldur þeim saman enda eru kirkjur og klaustur á hverju strái. Sterk þjóð með sterk einkenni.

Við fórum dagsferð upp í sveit t.d. til Uplistsikhe – hægt að lesa sér til hér: Cave Towns of Georgia


Ég varð margs vísari og upplýstari um Georgíu með þessu dásamlega myndbandi:
GEORGIA: 8,000 Year Old Hidden Gem of the World | 4K Travel Documentary
og varð ansi snortin af sögunni af Svan fólkinu sem býr hátt upp í Kákasus fjöllunum!Svan-fólkið í Svaneti, Georgíu, lifir eftir fornum ættbálkahefðum í miðaldaþorpum – news.com.au – GeorgianJournal

og maturinn!! valhnetumauk í eggaldin eða í papriku, er að fara að prófa Kahchapuri, búin að prófa Khachapuri og Kubdari og auðvitað Khinkali!!! svo er það hnetur með bræddun vinberjum utan um (sjá myndina neðst)
Sjá kynningu á matnum þeirra: the georgian food – Google-leit


Tbilis – nafni kemur frá heitu vatni – rétt eins og Reykjavík! Reykurinn úr laugardalnum, þar sem heita vatnið er! Enda er hjarta Tbilis – þar er Gil – foss, kalt vatn og svo hver – og þar laugar fólk sig, fullt af spa og nuddi í boði 🙂 dýrð!!



Við vorum 27 íslendingar sem komum hingað til að vera í brúðkaupinu og upplifa Georgíu – ógleymanlegir dagar frá 1. – 17. ágúst 2026
Svo er soldið af hundum… já og kisum…






og smá meira … fjölskyldumyndir





