Ég ætla að fá hér að leika mér smá með myndum … hvað greip huga minn með andlega lífið í Tbilis… veggjakrot er víða og minnir á að þeir vilja burt her rússa af sínu landi – og þeir standa með Ukrainu, svo var ég blessuð í Oxodox kirkju af presti, og af munk við gilið þeirra í miðbænum, ég sá skemmtilegar verslanir fyrir réttrúnaðarkirkjur og fyrir líkneski o.s.frv. og hér sjáiði eitthvað af því sem greip athygli mína, við heimsóttum heilagan reit, þar sem klæði jesú eru talin vera grafin frá því hann var negldur á krossinn og við heimsóttum klaustur sem var hátt upp á klettum og þar sem ár mætast, við sáum list – sem minnir á að við erum náttúran o.s.frv. o.s.frv.


fékk armband – á því er táknið Buddha sem japanskur vinur minn sagði mér að þýddi:
It’s the symbol of seeing reality as it truly is, with wisdom and compassion. It can also be a symbol of the human possibility to awaken from ignorance and suffering.






Svo sá ég yoga – stöð – að ég held:

og ekki má gleyma krossinu hennar Heilögu Nino sem sagði konginum í Georgiu að taka upp kristna trú árið 300 eða 500 eftir krist – og gerði kross úr vínviði og því er hennar kross beigður með ,,organic” sveig eins og vinviður:

Samkvæmt hefðinni bar Nino þennan kross þegar hún boðaði kristni í Georgíu og kristnitakan er tengd henni um 337 e.Kr. (nákvæmt ártal er reyndar umdeilt
og svo má alveg tilbiðja bara náttúruna hér í Georgíu sem er gjöful – gaf hér vínið og gefur ávexti og jafnvel vín-therapy og wine-ice!








Er þetta sumardrykkur 2026 spyr New york times? – appelsínusafi og kaffi blandað saman? svo segir þessi rússneska glæsilega unga kona sem býr í Bandaríkjunum og vildi ólm eiga mynd af okkur saman af því ég hafði skrifað bók.. svo ég smellti líka mynd
Is Orange Coffee the Drink of the Summer? – The New York Times

og enda svo auðvitað á mynd sem gæti heitið Hrefna skoðar heiminn 🙂

já og nóg af kirkjum 🙂 og nú er hótelið okkar að fyllast af búrkum … konum sem sést ekkert í og þær borða svo með því að lyfta upp og borða bak við klæðin og mér sýndist einn eiginmaðurinn vera með þrjár með sér, hann lét son sinn taka í hendina á mér – og ekki í hendurnar á Lilju né Auði – var það af því ég er ljóshærð? eða hélt hann að ég væri sú elsta við borðið?? 🙂


