Elene Akhvlediani (1901-1975)

Elene Akhvlediani (1901-1975) was a 20th century Georgian painter, graphic artist, and theater decorator. Akhvlediani is famous for her depictions of Georgian towns, for her illustrations for the works of Ilia Chavchavadze and Vazha-Pshavela, and for designing plays in the Marjanishvili Theater in Tbilisi, Georgia.

Elene Akhvlediani – Biography | ბურუსი – BURUSI

Elene Akhvlediani – Wikipedia

Ég er snortin eftir langt sumarfrí. T.d. af þessum fallega texta um dásamlega listakonu, Elene Akhvlediani, myndum hennar, heimili hennar, sögu hennar og sögu landsins hennar, Georgíu.

Strax af útliti hennar mátti sjá að Elene Akhvlediani var einstök manneskja. Hún var hávaxin kona með svipmiklar hendur og heillandi andlit. Í hvert sinn sem hún snerti eitthvað – sérstaklega pensil eða blýant – varð það augljóst. Öll hennar tilvera snerist um að mála; það var henni jafn nauðsynlegt og að anda. Hún málaði vegna þess að endalaus straumur lífsreynslu kallaði á að fá að birtast á pappírnum. Er ekki einstakt þegar listaverk endurspeglar skapara sinn svo fullkomlega? Elene Akhvlediani unni lífinu af öllu hjarta.

Hún hafði þann einstaka hæfileika að sjá fegurðina í hverju smáatriði þessa heims. Í hverjum litblæ og hverju mynstri, í hverri hreyfingu og hverju hljóði, í hverju orði og hverri þögn, í brosum jafnt sem tárum. Hún auðgaði líf allra sem urðu á vegi hennar með ást sinni og fegurðarsýn. Líf hennar einkenndist bæði af hógværð og ómældri lífsástríðu. Aðeins sá sem er frjáls hið innra getur lifað á þann hátt. Hún gaf af sér ótrúlega mikið – en bað aldrei um neitt í staðinn. (Natela Urushadze)

Leave a comment