Allir skóla ættu að hafa kyrrðarstund, helst á hverjum degi er haft eftir virtum skólastjóra og brautryðjanda í að innleiða hamingjuaukandi æfingar í skólastarf, Anthony Seldon the master of Wellington College.
Jafnvel tvær mínútur í kyrrð er nóg.
Það sem þessar nokkrar mínútur gefa börnunum er bætt andlega heilsa, aukin hamingja og vellíðan og aukin einbeiting fyrir námi segir leiðandi skólastjóri í Bretlandi sem er brautryðjandi í hamingjuverkefnum í skólastarfi.
Þessi einfalda æfing sem getur verið t.d. í formi núvitundaræfinga og slökunar. Þetta er nauðsynleg hvíld í nútímalífi barnanna, þar sem mörg áreiti eru að kalla á þau. Þetta hvílir börnin frá félagslegum samskiptum, frá öllum tækjum og hávaða. Það sem þau uppskera er öflugt verkfærið sem virkar vel gegn streitu og eykur seiglu. Hér áður fyrr voru það kannski trúarathafnir sem voru hvíld frá hversdeginum.
Athyglisvert viðtal hér: