Góðverk

Hvað er góðverk?

Kannski eru til mis ,,mikil” góðverk, en góðverk þó. Það að vera kurteis er góðverk, að sýna umburðarlyndi, að samþykkja aðra og einfaldlega að finna hlýju gagnvart samferðarfólki er form af góðverki.

Að sýna öðrum samhyggð, upplifa með þeim, er góðverk.

Að rétta hjálparhönd, að hafa samband við einhvern þurfandi er góðverk.

Að létta undir, að hvetja, er góðverk.

Að styrkja gott málefni, versla varning af barni sem er að safna fyrir ferð, er góðverk.

A gera öðrum gott í nafnleysi, er væntanlega með hærra stigs góðverkum.

Það er ekki góðverk ef þú ert að gera þetta af skyldu, af samviskubiti, e’ða ef þú ætlast til einhvers í staðinn.

Til umhugsunar:

Gerðir þú góðverk í dag? einver í þinn garð? Varst þú vitni að góðverki? Sástu eitthvað í fjölmiðlum sem var góðverk?

Mannbætandi:

Við vel lukkað góðverk, losnar út hormón sem lætur þér líða vel. Gæska er ekki bara mikilvæg dyggð, heldur er hún eitt af límum mannlegs samfélags. Gæska gerir það að verkum að við mannfólkið hreinilega lifum af!

Vel lukkað góðverk eykur hamingju þiggjanda og gefand, styrkir sjálfstraust, minnkar streitu og styrkir tengsl. Góðverk hægir á hjartanu, þú lítur betur út og minnkar kvíða.

Góðverk getur verið smitandi!

Mér finnst eins og það sé dálítið amerískt fyrirbrigði að tala um góðverk t.d. ,,Random act of kindness” er eitthvað sem er talsvert talað um og gert í Vesturheimi. Hér eru t.d. 100 hugmyndir að góðverkum: https://www.signupgenius.com/groups/random-acts-of-kindness-ideas.cfm

Hér er að finna 101 hugmynd :-)! https://www.twinkl.com/blog/101-random-acts-of-kindness

Hér er síða fyrir skóla um góðverk: https://www.randomactsofkindness.org/kindness-ideas

Hér er bara svona allskonar dæmi um góðverk:

https://island.is/s/hsu/frett/kvenfeloegin-a-sudurlandi-gefa-til-hsu

https://www.lungu.is/post/samt%C3%B6k-lungnasj%C3%BAklinga-gefa-g%C3%B3%C3%B0ar-gjafir-til-styrktar-starfsemi-reykjalundar

https://www.mbl.is/frettir/burdargrein/2020/04/09/rausnarleg_nafnlaus_gjof_barst_lsh/

https://www.feykir.is/is/frettir/gafu-fullkomid-hjartastudtaeki-asamt-aukabunadi

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s