Hugleiðslur

Við sækjum í hugleiðslur, til að heyra það sem við heyrum ekki nema í kyrrð.

Innsæi, andadrátt, kannski eigin þarfir, hvað raunverulega skiptir máli og hvað við raunveruleg viljum, hvað er líkaminn að segja, hvað er sálin að segja o.s.frv.

Það er til mikið af hugleiðslu öppum og síðum til, þetta er orðið hluti af lífi nútímamannsins sem lifir í borgum þar sem er stöðugur hávaði og stöðug áreiti, ef ekki utandyra þá innandyra í formi samfélagsmiðla, sjónvarp, útvarps o.s.frv.

Núvitund: Að bara vera. Vera hér og nú. Staldra við andartak – er gjöf (being prestent).

Gtur snúið að andadrætti, sjá fyrir sér myndir, líkamsskönnun, sýna sér góðvild, fara með möntru, eða bara það að stoppa og staldra við… heyra hljóð, finna fyrir snertingu loftsins á húðinni, anda og bara vera. Bara gaman að prófa allskonar. Allt hjálpar þetta við að vera meira til staðar fyrir sjálfan sig, hjálpar manni að kyrra hugann og heyra í eigin hugsunum og bara slaka. Það skilar sér síðan í líkamann með betri heilsu, svo segja rannsóknir 🙂 hægir á blóðþrýstingi, hjartslætti, betri svefn, betri samhljómur líffæra o.s.frv.

Hér er t.d. nokkra mínútna ljómandi góð hugleiðsla frá Heilsuveru:

https://www.youtube.com/watch?v=wfExlzLp3dA

Núvitundarsetrið er með mikið magn hugleiðslna, eru líka á Spotify:

https://www.nuvitundarsetrid.is/

Hér eru dásamlegar kyrrðarhugleiðsur sem ég mæli með:

Kyrrðarhugleiðslur – með yoga kennurum: https://www.kyrrdarjoga.is/hugleidslur

Dásamlegt joga nidra: 28 mínútna Yoga Nidra með Berglindi

Happ app-ið: https://www.happapp.is/

og hér: https://www.heilsuvera.is/efnisflokkar/lidan/vellidan/happapp/

og hér er síða höfundar :https://www.andlegheilsa.is/happ-app

Svo má ekki gleyma hinum einstaka Echart Tolle – sjá t.d. hér- mikið af upptökum af Echart á youtube: https://www.youtube.com/watch?v=foU1qgOdtwg

Þessi hefur alltaf róað mig, minnir mig á hvað veröldin er stærri enn mínar áhyggjur – hjálpar manni með sjónarhorn:

https://www.pixelthoughts.co

Hér er frábær hugleiðing frá Séra Vigfúsi Bjarna um núvitund og hugarró!

Hugarró, þakklæti, núvitund og hjálp – Hamingjuvísir

Og hér er öndunaræfing til að róa kerfi okkar: Buteyko öndun – Hamingjuvísir

Svo er hér frábær síða með allskonar góðum ráðum og heitir Sterkari út í lífið og þar er að finna app, Hugarró með allskonar hugleiðslum https://sterkariutilifid.is/

https://sterkariutilifid.is/app

Hlakka til að heyra þína reynslu – hvaða app eða síðu þú fannst og varst ánægð með 🙂

Skvaldur eftir Amöndu Hernández

Kyrrð er ekki í boði á þessari öld.

Hún nær ekki rótfestu. Allt öskrar.

Skrímslin sem við erum, þetta lærða ástand,

urrar vægðarlaust.

Er þá mögulegt að flýja skarkalann?

Að hreiðra um sig í þögn,

eða finna skjól sem vaggar

angistinni sem veit að við deyjum

svo smá,

svo mikilvæg,

innan um skefjalaust skvaldur

Fengið af facebook status Gunnars Smára Egilssonar 20.09.26 – ljóð e Amöndu frá Puerto Rica

Leave a comment