Næra ræturnar

Stattu í fæturnar – náðu tenglsum við jörðina – helst berfætt … þú stendur á herðum forfeðra þinna, foreldra þinna. Foreldrar þínir stóðu í rauninni á herðum foreldra sinna – og þannig koll af kolli.

Nú skaltu lyfta höndum upp – upp til skýja. Hátt upp til skýja. Gerðu þér grein fyrir því, að fyrir ofan þig, er himininn, víður og tær – hátt til lofts, vítt til veggja, þarna er óendanlegt rými – þarna eru ský, stjörnur, loft, himinn, norðurljós, tungl, sól, allskonar.. þarna ert þú og allskonar möguleikar og tækifæri… möguleikavíddinn…. þínir möguleikar…og það góða sem þú gerir, getur þú gefið áfram. Börn þín gætu fengið sér ávexti af þínu tréf, ef þú hlúir vel að þínu.

Þegar þú tekur góðar ákvarðanir, eru að styrkja þig, þínar rætur og þú býrð að þeim rótum sem koma frá forfeðrum, sem gerðu það að verkum að þú ert hér og margt gott hefur þú frá þeim – náðu í það, mundu eftir því, nærðu það – náðu sambandi, og haltu áfram og styrktu það – með því að gera gott – sofa, borða hollt, hreyfa þig o.s.frv.

Nourish Your Roots: The Tree Test – Alan Heeks

Leave a comment