Sjálfsumhyggja III

Hugsaðu vel um huga þinn og líkama og sálina, með því að gera hluti sem gleðja þig. Þegar þér líður vel – verður auðveldara að vera til staðar hér og nú – og takast á við lífið 🙂

Skrifaðu niður gildi þín og hvað raunverulega skiptir þig máli í lífinu 🙂 Hafðu listan við höndina – til að minna þig á hvers þú átt að vænta og hvað þú átt að samþykkja í samskiptum þínum og samböndum við aðra

Gerðu hluti sem færa þér gleði og ræktaðu tengsl við fólk sem gefur þér góða orku 🙂

Veistu – við eyðum stundum of miklum tíma í að velta okkur upp úr forðinni eða framtíðinni – að beina athyglinni að því sem þú ert þakklát fyrir – þjálfar hugann að vera hér og nú – og taka eftir blessununum og það sem lífið hefur fært þér og er að færa þér

Hvaða orku ertu að senda heiminum? Vertu með meðvituð/meðvitaður – hvaða orku þú ert að senda heiminum … með hugsunum þínum, tilfinningum og hegðun – vertu viss um að þær samræmist gildum þínum og markmiðum.

Þegar kyrrð ríkir… verður það sem skiptir þig mestu máli mjög hávært 🙂 skýrt … greinilega… áberandi … þú heyrir rödd hjartans… þegar hávaðinn í heiminum hljóðnar 🙂

Leave a comment