Að fyrirgefa öðrum snýst ekki um að afsaka hegðun þeirra, heldur að losa þig undan þeim tökum sem þeir hafa á þér. Að halda í gremju leiðir aðeins til meiri reiði og biturleika.
Þegar þú finnur fyrir neikvæðri hugsun um sjálfa þig, taktu eftir henni, viðurkenndu hana, stöðvaðu svo hana með því t.d. að standa upp. Beindu athyglina að einhverju góðu um sjálfa sig.
Horfðu í spegil og segðu við sjálfa þig ,,Ég á gott skilið, ég er verðug þess góða í lífinu, ástar, friðar, gleði og hamingju”
Ef þú heldur að sjálfsumhyggja sé eigingirni, þá ertu að missa af kjarna málsins. Sjálfsvirðing, sjálfsást og sjálfsviðurkenning eru mikilvæg skref á leiðinni að því að verða heilsteypt og sátt manneskja.
Lestu þetta daglega:
Ég á skilið að hugsa vel um sjálfa mig.
Ég er verðug ástar, virðingar og umhyggju – líka frá sjálfri mér.
Ég samþykki sjálfa mig eins og ég er, um leið og ég held áfram að vaxa og þroskast.
Ég þarf ekki að sanna gildi mitt fyrir öðrum.
Ég er nóg. Akkúrat eins og ég er.

