- Vertu ekkert að eyða orkunni í að ,,vinna aðra á þitt band” .. eða leita að samþykki þeirra, settu athyglina bara á þig og skilja sjálfa þig, samþykkja sjálfa þig og elska þig :-). Virðið þitt ræðst ekki að því hversu mikið aðrir dáðst að þér, heldur af því hvernig þú lítur á sjálfa þig
- Við stjórnum ekki því sem gerist í kringum okkur, við getum bara spilað úr þeim spilum sem við fáum í hendurnar. Þú býrð yfir meiri krafti enn þú heldur … þú ert miklu miklu kröftugri en þú nokkurn tímann heldur………… við ráðum ekki aðstæðum okkar, en við getum tamið viðbrögð okkar
- Það er eðlilegt að líða stundum illa. En það er mikilvægt að geta leitað sér leiða ef þörf er á, til að vanlíðan nái ekki fótfesti og stjórni lífi þínu. Þú vilt halda áfram að lifa góðu lífi og taka skynsamlegar ákvarðanir, sýna hugrekki og styrk. Það er hugrekki og styrkur, ekki veikleiki, að biðja um hjálp.
Ef þú heldur að sjálfsumhyggja sé eigingirni, þá ertu að missa af kjarna málsins. Sjálfsvirðing, sjálfsást og sjálfsviðurkenning eru mikilvæg skref á leiðinni að því að verða heilsteypt og sátt manneskja.
Lestu þetta daglega:
Ég á skilið að hugsa vel um sjálfa mig.
Ég er verðug ástar, virðingar og umhyggju – líka frá sjálfri mér.
Ég samþykki sjálfa mig eins og ég er, um leið og ég held áfram að vaxa og þroskast.
Ég þarf ekki að sanna gildi mitt fyrir öðrum.
Ég er nóg. Akkúrat eins og ég er.

