Joar Vittersö – ekki sama að líða vel og það að lifa góðu lífi

Dyggðir, persónulegur þroski, merking og að takast á við krefjandi verkefni geta aukið gæði lífsins, jafnvel þegar þau fylgja ekki alltaf jákvæðum tilfinningum. Þetta er meginástæða þess að hinn þekkti norski sálfræðingur Joer Vittersö, telur að hefðbundið SWB-líkan sé of takmarkað. Að líða ljómandi vel, er mikilvægt, en það er ekki það sama og að lifa góðu lífi.

Kenning Ed Dienar og fleirri – hann ögrar þeim: SWB = LS + PA − NA (LS (Life Satisfaction) = lífsánægja, PA (Positive Affect) = jákvæðar tilfinningar og NA (Negative Affect) = neikvæðar tilfinningar

Þetta er klassíska líkan Ed Diener um huglæga vellíðan og er oft kallað the mainstream SWB approach.

Í stuttu máli segir það: Því ánægðari sem þú ert með lífið, því fleiri jákvæðar tilfinningar sem þú upplifir og því færri neikvæðar tilfinningar sem þú hefur, því meiri er vellíðan þín.


Hvað er Vittersø að gagnrýna?

Vittersø segir að þessi skilgreining sé of þröng. Hún mæli fyrst og fremst: hvort fólki líði vel, en ekki endilega hvort það lifi vel.

Hann bendir á að sumar af mikilvægustu upplifunum lífsins séu alls ekki alltaf þægilegar, eins og til dæmis:

  • að ala upp barn,
  • skrifa doktorsritgerð,
  • ganga í gegnum sorg,
  • læra eitthvað mjög erfitt,
  • standa með eigin gildum þegar það kostar mikið –

Vittersø, Joar | UiT

Þetta getur falið í sér kvíða, óöryggi, streitu, vonbrigði, en samt stuðlað að dýpri þroska og meiri merkingu.

Þess vegna vill hann að rannsóknir á vellíðan taki einnig tillit til:

  • persónulegs þroska,
  • merkingar,
  • forvitni,
  • þátttöku,
  • visku,
  • þroskandi áskorana.

Þú getur verið:

  • mjög heiðarleg,
  • hugrökk,
  • réttlát,

og samt upplifað tímabundið mikla vanlíðan.

Samkvæmt hefðbundnu SWB-líkaninu myndi vellíðan þín þá lækka.

Vittersø spyr hins vegar:

Er ekki mögulegt að einstaklingur sé að lifa mjög góðu og merkingarbæru lífi, jafnvel þótt honum líði ekki alltaf vel?

Hann sagði okkur dæmisögu af frægum norskum siglingahetju – sem sökti skipi sínu því vantaði eitt snæri -en er hann fór annan leiðangur, var hann með í för með sér einstaklinga héðan og þaðan úr heiminum og þá gekk allt betur því hann fékk reynslu og visku heðan og þaðan og nú var snærið og allt gekk upp – þetta tekst þegar við gerum þetta öll saman – falleg skilaboð frá norska sálfræðingnum 🙂

Leave a comment