Z E N
Hraðinn kemur oft innanfrá. Þú þarft ekkert alltaf að vera eitthvað rólegur eða tilfinningalaus, heldur reyna að vera bara heilshugar í því sem þú ert að gera og gera eitt í einu.
1. Að gera einn hlut í einu, hægt og ákveðið
2. Gera alla hluti til fulls
3. Gera minna
4. Hafa rými milli fyrirbæra/athafna
5. Skapa ritúöl
6. Taka frá tíma fyrir ákveðna hluti, t.d. hugleiðslu
7. Brosa og þjóna öðrum
8. Gera þrif og matseld að hugleiðslu
9. Hugsa um það sem nauðsynlegt er
10. Lifa einföldu lífi
Þögnin er ekkert vond, vertu bara með henni. Þarft ekkert að fylla í eyður. Vertu bara með augnablikinu og vertu hér og nú, ekki af því allt er fullkomið, af því þetta andartak er það eina sem er raunverulegt og það er hér og nú og það er í boði. Vertu góður við þetta augnablik. Þarft ekki að stjórna öllu, þarft ekki að dæma, bara vera. Eina sem breytist – er athyglin. Já þú þarf áfram að vaska upp, fara í sturtu. Eina sem breytist, er athyglin.

„Sit quietly, doing nothing.
Spring comes, and the grass grows by itself.“
Hún minnir á að ekki allt í lífinu verður til með meiri átökum eða meiri fyrirhöfn. Sumt vex þegar við hættum að toga stöðugt í það

Fræg Zen saga:
Nemandi spyr:
„Hvað gerir þú eftir uppljómun?“
Meistarinn svarar:
„Höggva við. Sækja vatn.“
„Og fyrir uppljómun?“
„Höggva við. Sækja vatn.“
Verkin breytast ekki endilega. Athyglin breytist.
Vera mín hjá HNLFÍ hefur hjálpað mér að ná smá ZEN 🙂
