Barbara Friedricsen segir að til að líða vel, þarf hlutfallið að vera þannig að við upplifum þrjár jákvæðar tilfinningar á móti einni erfiðri, þ.e. þetta sé formúlan 3:1. Til að geta sagt að maður búi í góðu hjónabandi, gildir hins vegar formúlan að þú verður að upplifa þar fimm góðar tilfinningar á móti einni slæmri, þ.e. 5:1.