Rannsókn sem varð gerð fyrir 20 árum varpaði aðeins ljósi á því hvernig ,,ást” verður til. Leyndarmálið virðist vera frekar aðstæður en að ,,rétta manneskjan” gangi í netið. Það þarf aðstæður þar sem er tækifæri á nánd, einhver opnun, einhverskonar afhjúpun þar sem þú treystir nýrri manneskju fyrir hugsunum þínum sem síðan þróast í að deila draumum og fólk fer að gefa af þér meira. Já og einn mikilvægur lykill, er að horfast helst í augu í 4 mínútur :-). Þá skapast nánd, traust og opnun!
Það þarf sem sagt ákveðnar aðstæður sem geta gert það að verkum að ást gagnvart annarri manneskju kviknar og þá er það jafnvel hreinilega aðstæðurnar sem skapa það ekkert síður en ,,rétta manneskjan”.
Þessar aðstæður skapast oft í skólum eða í námi, kannski á vinnustöðum og í gegnum áhugamál, en við höfum kannski ekki þróað með okkur hér á landi almennilega stefnumótahefð þar sem svona kjöraðstæður bjóðast, en þó eru kannski mikið betri aðstæður nú en nokkru sinni með nútímtækni, einfaldlega vegna þess að þá er fólk að hittast sem er í svipuðum hugleiðingum.
Hér er skemmtileg grein um ástina í nútímasamfélagi þar sem blaðamaður gerði tilraun með að skapa svona aðstæður og notaði aðferð sem var notuð í rannsókn um ástina og við það bara eitt að horfast í augu í 4 mínútur! Þessar fjórar mínútur leiddu svo til ástarsambands milli blaðamannsins og tilraunadýrsins 🙂
Skemmtileg grein úr New York Times frá 2015.
Hér er að finna sjálfa rannsóknina, sem var framkvæmd fyrir 20 árum: http://psp.sagepub.com/content/23/4/363.full.pdf+html
Að síðustu er hér að finna spurningarnar sem voru notaðar í tilrauninni, gefðu þér nú stund fyrir næsta ,,date” og farðu í gegnum valdar spurningar og horfist endilega í augu, alla vega í nokkrar mínútur:
http://www.nytimes.com/interactive/projects/modern-love/36-questions/?ref=redirector
Góðar stundir, ástarstundir!