Höfundur ókunnur.
Þótt ég sé látinn
harmið mig ekki með tárum.
Hugsið ekki um dauðann
með harmi og ótta.
Ég er svo nærri að hvert eitt
ykkar tár snerti mig og kvelur,
því látinn mig haldið.
En þegar þið hlæið og syngið
með glöðum hug,
sál mín lyftist upp í mót
til ljóssins.
Verið glöð og þakklát
fyrir allt sem lífið gefur.
Og ég, þótt látinn sé,
tek þátt í gleði ykkar
yfir lífinu
Þetta er ég að ,,fá að láni/stela”, facebook status Þorgríms Þráinsson um jól 2024, bæði ljóðið og myndin!

“Njótið alls sem þið eigið eftir því lífið getur svo sannarlega breyst á svipstundu. Við vitum aldrei hvað við eigum langan tíma eftir…og það veit ég ekki heldur. Forðist að eyða orku í smáatriði sem skipta ekki máli. Njótið birtunnar á fallegum sumardegi, njótið fuglasöngsins, njótið hljóðsins í blaktandi laufum trjáa, njótið radda áhyggjulausra barna að leik.” – Þrúður Vilhjálmsdóttir, leikkona – lét frá sér eftir að hún var greind með ólæknandi krabbamein sem tók hana á 6 mánuðum
Tilvitnun úr bókinni ,,Heilbrigði býr í huganum” – Parkinson samtökin Íslandi gaf út 2003. Svend Andersen:
,,Ég leyfði honum (grátnum) að brjótast fram og gekk um kjökrandi í nokkra daga. Þetta var gamall grátur, sorg, leiði, sem ég hafði alls ekki afgreitt heldur ýtt til liðar allt of snemma. En hvenær er of snemmt? Hvenær er rétta augnablikið? Það vitum við aldrei? Kannski ljúkum við aldrei djúpstæðustu sorgarferlunum í lífi okkar. Kannski er nauðsynlegt að skoða þau öðru hverju og leyfa sér 15 mínútna sjálfsvorkunn; Gefa sér heimild til að hverfa inn í leiðann, sem maður finnur að er til staðar. bls. 46.
Lýkur einhvern tímann því sorgarferli, sem fylgir mikilum erfiðleikum í lífinu? Ég held ekki! Þegar lífið tekur verulega í hnakkadramboð á okkur þá berum við þess merki alla ævi. Elski maður mikið þá syrgir maður í jafn ríkum mæli. Séum við ánægð með okkur sjálf og lifið veðrum við sorgbitin í sama mæli þegar sjúkdomur leggur höft og hömlur á okkur og það líf, sem við getum lifað. Það á ekki að kenna fólki að ,,ljúka sorgum sínum og vandamálum” heldur hjálpa því til að auka færni sína til að lifa með þeim. Við þurfum að læra að taka þeim, sem hluta góðs lífs. Þá vinnur tíminn smátt og smátt dálítið á leiðanum og við förum að geta látið okkur líða vel í fylgd hans. Markmiðið er ekki að vera laus við tárin og leiðann. Það væri eins og að hætta að lifa.Svo jæja, mikið er þetta nú sorglegt með mig… og lífið heldur samt áfram. Í raun heldur það áfram á miklu heilli máta; er meira ekta, ef ég þori að viðurkenna það. bls 48-49.

Skrifa sig frá erfiðum tilfinningum – Hamingjuvísir
Líf mannlegt hefst skyndilega
Líf mannlegt hefst skyndilega
manni dauðbregður, Hallgrímur
Enda er lífið
eins og við höfum talað um
með eindæmum heildstæð upplifun
það er engu við það að bæta
þetta þekkir þú auðvitað Hallgrímur
þetta þekkja margir þeirra sem lifa
og flestir þeirra sen eru dauðir
en hafa lifað
Vandinn er kannski sá að við erum óviðbúin
og í þokkabót skepnur vanans
sækjum í það sem við þekkjum best
enda er lífið
ekki hið ráðandi
mér liggur við að segja ekki hið náttúrulega
ástand manneskjunnar
Athugaðu það Hallgrímur
Frá sjónarhorni jarðsögunnar
erum við eiginlega alltaf dauð
Ragnar Helgi Ólafsson
