Hver er ég núna? Hvað gefur lífinu gildi? Hvað vil ég skilja eftir mig?
Er það ekki tilgangurinn sem knýr okkur áfram og getur glætt upp eldinn í okkur, halda glóðinni á lífi?
Í stað ,Hvar viltu vinna?” í ,,Af hverju viltu vinna? og ,,Af hverju viltu vinna þarna?”
í stað ,,Hvað gerir þig hamingjusama? í ,,Af hverju myndi þetta gera þig hamingjusamari?” Af hverju skiptir það máli? af hverju? af hverju? Hvernig getur þú fært þig nær því að finnast þetta skipta máli?

… jú af því ég vil vera með, ég vil tilheyra, af því ég vona, af því ég vil eiga tækifæri, ég vil geta hjálpað öðrum, af því ég vil vera stolt af mér, af því ég vil geta hjálpað öðrum, fyrir börnin mín, til að hafa tilgang, til að halda áfram, af því ég vil vera til staðar fyrir mig, fyrir aðra, til að vera upp á mitt besta … af því ég á gott skilið, ég vil vera fyrirmynd.
En já það verða vonbrigði, hönfun, kvíði – og þú losnar ekki við mótlæti og þessar tilfinningar, heldur bara finnur leiðir til að halda áfram í átt að því sem skiptir þig máli. Hvernig get ég gert líf mitt fallegt og tilgangsríkt, þrátt fyrir sársauka og þjáningu?
Tilgangur og merking í starfi – Hamingjuvísir
