Jákvæð leiðtogafærni

Þrjú gildi jákvæðrar leiðtogafærni – leiðarljósin á dögum þegar mest á reynir á vinnustöðum. Samkennd. Fyrirgefning. Þakklæti. Gastu sýnt samkennd í dag? Sýndir þú þakklæti í dag? Þarf að fyrirgefa í dag? Er eitthvað í fyrirtækinu í dag sem þarf að laga?

 Til að fólki líði vel í vinnunni, þarf það að finna að þegar eitthvað kemur uppá, er menningin á vinnustaðnum þannig að tekið er á málum, að það sé sálrænt öryggi, að það meigi gera mistök, það sé fyrirgefning í loftinu með þeim hætti að allir læri af því og tekið sé á hlutum og þeir lagaðir. Þeir biðji afsökunar sem þurfi og svo sé haldið áfram. Að ef einhver á um sárt að binda, sé skapaður vettvangur til að geta létt undir eða taka þátt í að sýna samkennd. Sálfélagslegt öryggi verður til þegar stjórnendur sýna það í verki og helst daglega, að heilsa, öryggi og árangur fer saman. Menning mótast ekki bara í stefnu á pappír, heldur í athöfnum þegar á reynir.

Svo er að þekkja orkugjafa á vinnustaðnum og ýta undir að þeir fái verkefni í hendur sem hefur áhrif á aðra, t.d. verkefnastjórnun, taka á móti nýliðum, verði leiðtogar. Þeir sem taka orku – séu alls ekki í slíkum verkefnum. Helst að ýta undir að styrkleikar hvers og eins njóti sín.

Og síðast en ekki síst, að minna stöðugt á merkingu. Af hverju við erum að þessu og hvaða máli það skiptir í stóru myndinni. Við erum jú alltaf að þjónusta hvert annað, viljum að fólk sé glatt, að það sem við gerum skiptir máli, stundin skipti máli, ýta undir ánægju, gleði, að vera – o.s.frv. Viljum að vinnan okkar sé einhvers virði! Ekki bara tannhjól … þá deyr eitthvað inn í okkur! Hvernig gerum við vinnustaðinn þannig að fólk njóti sín, finnist það skipta máli, er séð og leggur sig fram og upplifir köllun?

PERMA-Lead reynir að svara því.

Í stað þess að einblína eingöngu á:

  • aga,
  • reglur,
  • frammistöðu,
  • mistök,

er líka unnið með:

  • jákvæð samskipti,
  • tilgang,
  • styrkleika,
  • seiglu,
  • traust,
  • viðurkenningu,
  • og vellíðan starfsfólks.

Hvernig byggjum við samfélög, stofnanir og kerfi þar sem fólk getur blómstrað? – frekar en hvað gerir fólk hamingjusamt?

Leave a comment