Ungu fólki sem metur andlega heilsu sína góða hefur fækkað á síðastliðnum áratug á Íslandi og þá hefur streita og einmanaleiki aukist á meðal landsmanna.
Um sjötíu prósent telja andlega heilsu sína góða. Hlutfall kvenna sem telja hana vera það hefur hins vegar lækkað undanfarinn áratug á meðan hlutfallið hefur ekki breyst á meðal karla.
Svona heilt yfir þá eru flestar mælingarnar ýmist að standa í stað eða þá að þær eru að þróast til verri vegar
Aukning á upplifun fullorðinna af streitu í daglegu lífi og þá kannski einkum meðal kvenna.
Við erum að sjá lítils háttar aukningu á einmanaleika
Við höfum séð það alveg reglubundið í gegnum okkar mælingar að unga fólkið kemur jafnan verr út heldur en eldra fólk á flestu af því sem við erum að skoða hvað varðar andlega líðan.
Stafræn samskipti hafi aukist, frítími sé minni vegna þátttöku í skipulögðum tómstundum, breytingar hafi orðið á svefni ungmenna en fleiri eiga erfitt með að sofna á kvöldin en áður og þá hafi áhyggjur af þróun heimsmála og fleiru aukist.
„Það er auðvitað ýmislegt sem getur valdið áhyggjum hjá ungu fólki í dag og svo náttúrulega á móti kemur þessi seigluþáttur. Okkur hefur kannski ekki tekist að byggja upp nægilega seiglu og þrautseigju meðal unga fólksins okkar í dag til þess að takast á við þennan flókna veruleika sem blasir við því.“
Þannig sé margt í dag sem geti valdið streitu.
„Maður er með heiminn einhvern veginn í vasanum, liggur við, í gegnum snjalltækin okkar. Það er svo auðvelt að fylgjast með öllu í rauntíma og svo margt sem getur í rauninni valdið áhyggjum og óróleikatilfinningu.“
Heimild: Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana – Vísir

